Bandarískur kafbátur í þjónustuheimsókn á Íslandi
Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur, USS Delaware, verður í stuttri þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag. Varðskipið Freyja fylgir kafbátnum um landhelgina og í utanverðan Eyjafjörð, þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn. USS Delaware er orrustukafbátur af Virginia-gerð og slíkir kafbátar bera ekki kjarnavopn.
Þetta er í sjötta sinn sem kjarnorkuknúinn kafbátur bandaríska sjóhersins kemur í þjónustuheimsókn í íslenska landhelgi eða frá því að utanríkisráðherra tilkynnti 18. apríl 2023 að slíkum kafbátum yrði heimilað að hafa stutta viðkomu úti fyrir ströndum Íslands til að taka kost og skipta út hluta áhafnar. Landhelgisgæsla Íslands leiðir framkvæmd heimsóknarinnar í nánu samstarfi við embætti ríkislögreglustjóra, Geislavarnir ríkisins og utanríkisráðuneytið í samræmi við settar verklagsreglur. Vel hefur tekist til með undirbúning og framkvæmd heimsóknanna þökk sé þéttu samstarfi og samráði hlutaðeigandi stofnana innanlands og góðu samstarfi við bandaríska sjóherinn.
Þjónustuheimsóknirnar eru liður í varnarskuldbindingum Íslands og mikilvægt framlag til sameiginlegra varna Atlantshafsbandalagsins. Framkvæmd þeirra hér við land gerir bandamönnum okkar kleift að tryggja samfellu í eftirliti, stytta viðbragðstíma og senda skilaboð um viðveru og varnir á Norður-Atlantshafi. Kafbátar bandalagsríkja og kafbátaleitarvélar, sem meðal annars eru gerðar út frá Keflavíkurflugvelli, gegna mikilvægu hlutverki við eftirlit og stöðuvitund á Norður-Atlantshafi og stuðla þannig að auknu öryggi bandalagsríkja, þar á meðal á hafsvæðinu í kringum Ísland.
Nánari upplýsingar um þjónustuheimsóknirnar má nálgast hér.