Hoppa yfir valmynd
26. febrúar 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Loftgæðaspá nú aðgengileg fram í tímann

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Þorsteinn Jóhannsson, loftgæðasérfræðingur hjá Umhverfis- og orkustofnun, virða fyrir sér nýtt spálíkan um loftgæði. - mynd

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra opnaði formlega nýtt spálíkan fyrir loftgæði í heimsókn hjá Umhverfis- og orkustofnun í vikunni. Með því er mögulegt að spá fyrir um ástand loftgæða tvo sólarhringa fram í tímann.

Fram til þessa hefur eingöngu verið hægt að nálgast upplýsingar um mælingar á loftgæðum aftur í tímann og er spálíkanið því kærkomin viðbót við upplýsingar um loftgæði. Loftgæðaspáin er gerð fyrir tvö landsvæði. Annars vegar er gerð spá um styrk svifryks (PM10) og köfunarefnisdíoxíðs (NO2) frá umferð á höfuðborgarsvæðinu og hins vegar er gerð spá um dreifingu brennisteinsdíoxíðs (SO2) frá stóriðju og dreifingu brennisteinsvetnis (H2S) frá jarðhitavirkjunum fyrir allt Suðvesturland.

Rekstrarmælaborð bætir yfirsýn yfir rekstur Landsnets

Þá fékk ráðherra einnig kynningu á nýju rekstrarmælaborði Raforkueftirlitsins, en Raforkueftirlitið starfar sem sjálfstæð eining undir Umhverfis- og orkustofnun. Mælaborðið er gagnvirkt tól sem veitir skýra innsýn í rekstur Landsnets. Þar má sjá þróun tekna, gjalda og arðsemi eigna flutningsfyrirtækisins frá árinu 2015 til 2023, sem og uppgjör tekjumarka fyrir árið 2023.

Mælaborðið er hannað til að veita hagaðilum og eftirlitsaðila betri yfirsýn yfir fjárhagsstöðu flutningsfyrirtækisins, en með reglulegri uppfærslu gagna á það að geta stuðlað að auknu gagnsæi og betri ákvarðanatöku.

Ráðherra ræddi við forstjóra og sviðsstjóra Umhverfis- og orkustofnunar um helstu verkefni stofnunarinnar. Þá svaraði hann spurningum starfsmanna um áherslur sínar og ríkisstjórnarinnar í umhverfis- og orkumálum.

Ný Umhverfis- og orkustofnun tók til starfa um áramót með sameiningu Orkustofnunar og hluta af starfsemi Umhverfisstofnunar, en stofnunin fer með stjórnsýslu loftslags-, umhverfis- og orkumála og málefni auðlindanýtingar.

Loftgæðaspána er að finna á vefsíðunum spa.loftgaedi.is og loftgæði.is

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta