Tillögur að breytingum á lögum um leigubifreiðaakstur kynntar í samráðsgátt
Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Í bráðabirgðaákvæði við gildandi lög er kveðið á um endurskoðun á regluumhverfi leigubifreiða. Um er að fyrsta skref þeirrar endurskoðunar en unnið er að mögulegum frekari breytingum. Frestur til að senda inn umsögn í samráðsgátt er til og með 12. mars nk.
Tilgangurinn með frumvarpsdrögunum er að koma til móts við markmiðsákvæði gildandi laga um að tryggja gott aðgengi að hagkvæmri, skilvirkri og öruggri leigubifreiðaþjónustu fyrir neytendur. Einnig er markmiðið að mæta fram komnum athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) og þar með þjóðréttarlegum skuldbindingum Íslands.
Helstu breytingar eru eftirfarandi:
- Felld er brott heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án starfsleyfis leigubifreiðastöðvar þar sem ein leigubifreið sem hann er skráður eigandi eða umráðamaður að hefur afgreiðslu.
- Kveðið er á um skyldur rekstrarleyfishafa til að veita leigubifreiðastöð nauðsynlegar upplýsingar svo að leigubifreiðastöðin geti fullnægt eigin skyldum.
- Skyldur leigubifreiðastöðvar eru auknar og tilgreindar þær upplýsingar sem leigubifreiðastöð skal búa yfir.
- Leigubifreiðastöð er gert að taka við upplýsingum úr rafrænni skrá um upphafs- og endastöð hverrar seldrar ferðar rekstrarleyfishafa sem hefur afgreiðslu á stöðinni, um staðsetningu á meðan á ferðinni stendur og um greiðslu sem skráð er í gjaldmæli eða með öðrum fullnægjandi hætti að ferð lokinni.
- Skyldur til varðveislu gagna í 60 daga eru alfarið færðar frá rekstrarleyfishafa til leigubifreiðastöðvarinnar. Kveðið er á um árlega úttekt stafrænna kerfa leigubifreiðastöðvar svo að öryggi og gæði gagna séu tryggð.
- Leigubifreiðastöð er gert að bjóða farveg fyrir kvartanir neytenda um verð og gæði þjónustu. Leyfishöfum er um leið gert að upplýsa og leiðbeina neytendum um þann möguleika og möguleika til að kvarta til annarra viðeigandi stjórnvalda.
- Skoða drög að breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur, nr. 120/2022 (öryggi í leigubifreiðaþjónustu og starfsumhverfi leigubifreiðastjóra) í samráðsgátt stjórnvalda