Höfuðstöðvar nýrrar Náttúruverndarstofnunar opnaðar á Hvolsvelli
Ný Náttúruverndarstofnun er vel til þess fallin að auka skilvirkni og samræmingu í náttúruvernd á landsvísu og tryggja samræmdari og þar með betri stjórn á friðlýstum svæðum, sagði Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, í ávarpi sínu við opnun nýrra höfuðstöðva Náttúruverndarstofnunar í gær.
Höfuðstöðvar nýrrar Náttúruverndarstofnunar, sem staðsettar eru á Hvolsvelli, voru opnaðar formlega í gær. Við opnunina var ásýnd og merki stofnunarinnar kynnt, en þeim er ætlað að skapa ímynd og sjónrænt einkenni fyrir stofnunina þar sem virðing fyrir náttúrunni er höfð að leiðarljósi.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar.
„Markmið nýrrar ríkisstjórnar eru skýr. Við ætlum að styðja við náttúruvernd og við ætlum að styðja við líffræðilega fjölbreytni. Við ætlum að gæta að jafnvægi á milli orkunýtingar og náttúruverndar og passa upp á það sem við eigum hérna saman á Íslandi,“ sagði Jóhann Páll í ávarpi sínu.
Fundað með stjórnendum um tækifæri í náttúruvernd og umgjörð gjaldtöku
Ráðherra átti einnig fund með forstjóra Náttúruverndarstofnunar og stjórnendum um áskoranir og tækifæri í náttúruvernd, umgjörð varðandi gjaldtöku vegna sameiginlegra auðlinda og lýðræðislega þátttöku í náttúruvernd. Mikilvægi friðlýsinga var einnig til umræðu, náttúruminjaskrá, ólíkar tegundir verndar og verndarflokka rammaáætlunar, sem og mikilvægi alþjóðlegs samstarfs og lýðræðislegrar þátttöku í náttúruvernd. Fram kom að störf stofnunarinnar eru nauðsynlega fyrir komandi kynslóðir og stendur hún vörð um samfélagslega hagsmuni, enda er náttúra Íslands gríðarleg verðmæti.
Náttúruverndarstofnun tók til starfa um áramót við sameiningu Vatnajökulsþjóðgarðs og starfsemi náttúruverndarsviðs Umhverfisstofnunar. Stofnunin fer með stjórnsýslu, eftirlit og önnur verkefni á sviði náttúruverndar og sjálfbærrar þróunar og á sviði friðlýstra svæða, þ.m.t. Vatnajökulsþjóðgarðs og Snæfellsjökulsþjóðgarðs, sem og vernd villtra fugla og spendýra. Þá sinnir stofnunin eftirliti og samhæfingu í skipulagi svæðisbundinnar stjórnunar og verndar.
Markmiðið með staðsetningu aðseturs Náttúruverndarstofnunar er að stuðla að því að starfsfólk starfi í auknum mæli á landsbyggðinni í grennd við viðfangsefnið sem í þessu tilfelli er náttúra landsins, umhverfi og auðlindir.
Fjölmenni var viðstatt formlega opnun Náttúruverndarstofnunar.