Hoppa yfir valmynd
28. febrúar 2025 Heilbrigðisráðuneytið

Úthlutaði tæpum 100 milljónum kr. í styrki úr Lýðheilsusjóði

Ráðherra ásamt þeim sem hlutu styrk úr Lýðheilsusjóði 2025 - mynd

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra úthlutaði í gær 98 milljónum króna í styrki úr Lýðheilsusjóði við athöfn á Hilton Reykjavík Nordica. Styrkir voru veittir til 153 verkefna um allt land sem öll miða að því að efla lýðheilsu.

Að þessu sinni var áhersla lögð á að styrkja aðgerðir sem miða meðal annars að því að efla geðheilsu barna og fullorðinna og efla félagsfærni ásamt því að draga úr einmanaleika. Einnig var áhersla á áfengis-, vímu- og tóbaksvarnir, næringu, hreyfingu og kynheilbrigði. Við mat á umsóknum fyrir árið 2025 var einnig sérstaklega horft til verkefna sem styðja við minnihlutahópa, stuðla að jöfnuði til heilsu og tengjast nýsköpun á sviði forvarna og heilsueflingar.

Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fengnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær falla að hlutverki sjóðsins. Áður höfðu fagráð embættis landlæknis metið allar umsóknir sem bárust. Embætti landlæknis annast daglega umsýslu og reikningshald Lýðheilsusjóðs.

Hlutverk Lýðheilsusjóðs er skilgreint í lögum um landlækni og lýðheilsu og lýðheilsustefnu heilbrigðisráðuneytisins.

  • Úthlutaði tæpum 100 milljónum kr. í styrki úr Lýðheilsusjóði - mynd úr myndasafni númer 1
  • Úthlutaði tæpum 100 milljónum kr. í styrki úr Lýðheilsusjóði - mynd úr myndasafni númer 2

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta