Hoppa yfir valmynd
4. mars 2025 Heilbrigðisráðuneytið

Umsóknarfrestur í Framkvæmdasjóð aldraðra framlengdur til 10. mars

Framkvæmdir - myndStjórnarráðið

Frestur til að sækja um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2025 hefur verið framlengdur til mánudagsins 10. mars. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land.

Framkvæmdasjóður aldraðra starfar samkvæmt lögum um málefni aldraðra nr. 125/1999 og reglugerð nr. 468/2014. Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra fer með stjórn sjóðsins og gerir tillögur til heilbrigðisráðherra um úthlutun úr honum. Vísað er til reglugerðarinnar varðandi upplýsingar um þau verkefni sem heimilt er að veita framlög til, afgreiðslu umsókna og reglur varðandi framlög.

Vakin er athygli á að umsækjendum er gert að sækja um rafrænt og er umsóknarformið, ásamt nánari upplýsingum, aðgengilegt á vef heilbrigðisráðuneytisins https://hrn.is og umsóknareyðublöðin á https://minarsidur.stjr.is.

Mikilvægt er að vanda til umsókna og skila nauðsynlegum upplýsingum og fylgiskjölum innan tilskilins frests. Ekki verður tekið við umsóknum eftir að umsóknarfrestur er liðinn.

Umsóknum ber að skila í síðasta lagi mánudaginn 10. mars 2025.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta