600 milljónum skilað vegna hagræðingarátaks
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur ákveðið að falla frá ráðstöfun 600 milljón króna af fjárheimildum ársins 2025 og lagt til við fjármála- og efnahagsráðherra að horft verði til þess við gerð frumvarps til fjáraukalaga.
Um er að ræða 250 milljónir krónur af fjárheimildum á málefnasviði 15 Orkumál og 350 milljónir króna af fjárheimildum á málefnasviði 17 Umhverfismál.
Ákvörðunin um lækkun útgjalda sem þessu nemur er liður í hagræðingarátaki ríkisstjórnarinnar. Með henni er stutt við markmið um að ekki skuli ráðist í nein ný útgjöld árið 2025 án þess að aflað sé aukinna tekna eða hagrætt á móti.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Hagræðingarátak ríkisstjórnarinnar tekur til alls stjórnkerfisins. Fagstofnanir og starfsfólk umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins hafa tekið virkan þátt í vinnunni og fram undan eru mikilvæg hagræðingar- og sameiningarverkefni sem munu skila sér í sparnaði, bættri stjórnsýslu og léttari reglu- og stjórnsýslubyrði á komandi árum. Ég lagði þó líka áherslu á það þegar ég steig inn í ráðuneytið að útgjöld yrðu lækkuð strax á yfirstandandi ári til að senda skýr skilaboð og styðja við markmið ríkisstjórnarinnar um bætta afkomu ríkisins. Með markvissri forgangsröðun verkefna höfum við skapað svigrúm til að skila strax 600 milljónum króna án þess að það komi niður á kjarnastarfsemi ráðuneytisins og málefnasviða sem undir það heyra.“