Stærri hluti tekna af orkumannvirkjum renni til samfélaga sem næst standa
Ríkisstjórnin ætlar að vinna að breiðri sátt um lagaumgjörð vindorkunýtingar og sjá til þess að stærri hluti tekna af orkumannvirkjum renni til þeirra samfélaga sem næst standa. Þá verður raforkulögum breytt til að tryggja forgang heimila og annarra notenda. Þetta kom fram í ræðu Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra á ársfundi Landsvirkjunar í gær.
Daði sagði að eitt brýnasta verkefni íslenskra stjórnmála væri að auka verðmætasköpun og þar léki aukin orkuöflun lykilhlutverk.
„Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er skýrt kveðið á um að við ætlum að auka orkuöflun, styrkja flutningskerfi og bæta orkunýtni. Þannig ætlum við að styðja við orkuskipti og verðmætasköpun um allt land. Þar segir líka að við ætlum að einfalda ferli leyfisveitinga og að þau verkefni sem eru í nýtingarflokki rammaáætlunar verði látin njóta forgangs í stjórnsýslunni,“ sagði Daði.
Ráðherra sagði komið að því að bretta upp ermar og hefjast handa við orkuöflun.
Samstöðu þarf um beislun vindorku
„Spennandi verður að sjá Vaðölduver, fyrsta vindorkuver Landsvirkjunar og um leið Íslands, hefja raforkuvinnslu innan skamms. Vonandi mun það verkefni verða til þess að eyða tortryggni og efla trú á vindorkuna sem mikilvægan orkugjafa,“ sagði Daði. Beislun vindorkunnar væri eitt þeirra verkefna sem samstaða þurfi að nást um samhliða því að ná skynsamlegri nálgun og sátt um orkuöflun sem tekur í senn tillit til viðkvæmrar náttúru og verðmætasköpunar.
Daði fór yfir nýtt verklag sem kynnt var í febrúar við val í stjórnir ríkisfyrirtækja þar sem auglýst var eftir áhugasömum einstaklingum í stjórnir stærri ríkisfyrirtækja. „Ég bind vonir við að það muni skila góðum árangri fyrir rekstur fyrirtækjanna og hagsmuni eigandans – okkar allra. Svipaðri aðferðafræði hefur verið beitt við val í stjórnir bankanna undanfarin ár með góðum árangri. Síðast en ekki síst er þessi leið í samræmi við leiðbeiningar OECD um góða stjórnarhætti þegar kemur að tilnefningu í stjórnir opinberra fyrirtækja,“ sagði fjármála- og efnahagsráðherra.
Að endingu þakkaði Daði stjórn Landsvirkjunar fyrir störf sín og ítrekaði mikilvægi þess að fjárhagsstaða Landsvirkjunar yrði áfram sterk og arðgreiðslur hennar skiptu íslenskt þjóðarbú og ríkissjóð miklu máli.