Liðkað fyrir framkvæmdum í þágu orkuöryggis, orkuskipta og verðmætasköpunar
Hægagangur í orkuöflun og uppbyggingu flutningskerfis bitnar á raforkuöryggi, lífsgæðum og verðmætasköpun. Þetta var á meðal þess sem fram kom í ávarpi Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra, á vorfundi Landsnets 5. mars síðastliðinn.
„Í fyrsta sinn í langan tíma er ríkisstjórn við völd sem er einhuga um aukna orkuöflun og uppbyggingu orkuinnviða um allt land, þar sem hver einasti ráðherra og hver einasti þingflokkur er sammála um að hægagangur í orkumálum sé óásættanlegur og óboðlegur,“ sagði ráðherra. „Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur einbeittan vilja til verklegra framkvæmda og þetta mun endurspeglast í lagasetningu, stefnumótun og stjórnvaldsaðgerðum á næstu árum.“
Í ávarpinu greindi ráðherra frá því að von væri á stórum lagabreytingapakka strax í mars sem miðar að einföldun og aukinni skilvirkni leyfisferla í umhverfis- og orkumálum. „Hér erum við að tala um breytingar sem miða að því að fækka viðkomustöðum og gagnaskilum, sameina mismunandi tegundir leyfa í eitt leyfi, stytta afgreiðslutíma, byggja upp stafrænar lausnir sem nýtast þvert á stofnanir og skýra röð stjórnvaldsákvarðana gagnvart umsækjendum,“ sagði Jóhann Páll.
Jóhann Páll sagðist leggja áherslu á að flutningskerfi raforku yrði ekki út undan við einföldun á regluverkinu. „Því það er til lítils að virkja ef orkan situr föst eða tapast í stórum stíl. Og ég held að við verðum að horfast í augu við að breytingarnar sem gerðar voru á skipulagslögum á síðasta kjörtímabili hafa ekki dugað til að greiða fyrir uppbyggingu flutningskerfis og ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt. Þarna er frekari breytinga þörf og næstu skref eru til skoðunar í mínu ráðuneyti og í ráðuneyti skipulagsmála.“
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fór yfir ýmsar fleiri lagabreytingar sem fyrirhugaðar eru til að styrkja umgjörð raforkumarkaðar á Íslandi og verja raforkuöryggi heimila og fyrirtækja. Loks þakkaði ráðherra Guðmundi Inga Ásmundssyni, fráfarandi forstjóra Landsnets fyrir hans mikilvægu störf og bauð Rögnu Árnadóttur, verðandi forstjóra, velkomna.