Mikil eftirspurn eftir hlutdeildarlánum
Mikil eftirspurn er eftir hlutdeildarlánum en frá því í gær þegar Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS, opnaði fyrir umsóknir fyrir marsmánuð hafa borist umsóknir að fjárhæð 416,7 millj.kr. Til úthlutunar eru 350 millj.kr. Um er að ræða fyrstu úthlutun ársins og verður aftur opnað fyrir umsóknir í apríl.
Hlutdeildarlán eru veitt til fyrstu kaupenda eða þeirra sem ekki hafa átt fasteign síðustu fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Þau eru ólík öðrum lánum þar sem þau eru vaxtalaus og ekki er greitt af þeim mánaðarlega heldur lánið greitt til baka þegar íbúðin er seld eða eftir að hámarki 25 ár.
Nú þegar hafa borist 28 umsóknir vegna úthlutunarinnar í mars og af þeim eru 24 umsóknir á höfuðborgarsvæðinu og fjórar á landsbyggðinni. Umsóknartímabilið er frá 6. mars til 20. mars næstkomandi kl. 12:00.
Dugi fjármagn ekki sem er til úthlutunar er dregið af handahófi úr umsóknum þeirra umsækjanda sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána í samræmi við forgangsreglur. Í forgangi eru umsóknir þar sem staðfest kauptilboð liggur fyrir, auk þess sem miða skal við að á hverju ári verði að minnsta kosti 20% veittra hlutdeildarlána veitt til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins.
Frá því að fyrst var byrjað að veita hlutdeildarlán árið 2020 hafa slík lán verið veitt til kaupa á 989 íbúðum og nemur heildarfjárhæð hlutdeildarlána nærri 10,2 milljörðum króna.
Á þingmálaskrá félags- og húsnæðismálaráðherra er frumvarp þar sem lagt er til að stofnaður verði sérstakur Hlutdeildarlánasjóður sem hafi það hlutverk að fjármagna hlutdeildarlán. Markmiðið er að liðka enn frekar fyrir því að fólk geti tekið lánin og skapa aukinn fyrirsjáanleika. Líkt og segir í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er ætlunin að festa hlutdeildarlánin í sessi með skilvirkari framkvæmd og er stofnun Hlutdeildarlánasjóðs mikilvægt skref á þeirri vegferð.