Hoppa yfir valmynd
11. mars 2025 Dómsmálaráðuneytið

Árlegur fundur Kvennanefndar SÞ hafinn

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra tók þátt í árlegum fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. - mynd
Árlegur fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (csw69) hófst í New York á mánudag. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra sem jafnframt er ráðherra jafnréttis- og mannréttindamála, tekur þátt í fundinum fyrir Íslands hönd. Ráðherra lagði áherslu á mikilvægi samstöðu Norðurlandaþjóðanna í viðbrögðum við bakslag í kynja- og hinseginbaráttunni á fundi sínu með Simu Bahous, framkvæmdastjóra UN Women, og öðrum jafnréttisráðherrum Norðurlandanna við upphaf fundarins. Yfirskrift þátttöku Norðurlandaþjóðanna á Kvennanefndarfundinum í ár er Þrýst á framfarir.

Þorbjörg Sigríður fjallaði sérstaklega um lagabreytingar og árangursríkt átak íslenskra stjórnvalda til að berjast gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi á netinu í pallborði norrænu jafnréttisráðherranna undir yfirskriftinni Sameinist okkur í viðbrögðum við bakslaginu. Jafnframt lagði ráðherra áherslu á árangur Íslands í jafnréttismálum og dró fram mikilvægi samstarfs stjórnvalda og frjálsra félagasamtaka í því samhengi.

„Íslendingar standa framarlega á sviði jafnréttismála. Við höfum tryggt rétt beggja foreldra til fæðingarorlofs, gripið til aðgerða til að draga úr ofbeldi gegn konum og stuðlað að launajafnrétti svo dæmi séu nefnd. Við erum í fremstu röð hvað varðar réttindi hinsegin og transfólks í Evrópu og stefnum að því að gera enn betur því eins og við vitum er baráttunni hvergi nærri lokið,“ sagði Þorbjörg Sigríður og minnti á mikilvægi þess að Norðurlandaþjóðirnar væru fyrirmyndir og virkir þátttakendur í jafnréttismálum á heimsvísu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta