Hoppa yfir valmynd
11. mars 2025 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Mælti fyrir þremur frumvörpum

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra. - mynd

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir þremur frumvörpum á Alþingi. „Við kynntum í febrúar viðamikla þingmálaskrá og nú eru frumvörpin eitt af öðru að koma inn í þingið. Þetta sýnir að við í ríkisstjórninni ætlum sannarlega að láta verkin tala,“ segir ráðherra.

Frumvörpin þrjú sem Inga Sæland mælti fyrir í dag eru eftirfarandi:

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um sorgarleyfi (aukinn réttur foreldra)

Frumvarpinu er ætlað að auka réttindi foreldra enn frekar, meðal annars með því að tryggja þeim foreldrum sem missa maka rétt til sorgarleyfis. Sorgarleyfi er lagalegur réttur foreldra til að fá leyfi frá störfum í kjölfar barnsmissis í sex mánuði og greiðslur til að koma til móts við tekjutap á meðan. Í frumvarpinu er lagt til að sorgarleyfi nái einnig til foreldra sem verða fyrir því áfalli að hjúskapar- eða sambúðarmaki andast. Markmiðið er að styrkja enn frekar stöðu barna og barnafjölskyldna sem verða fyrir áföllum.

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu (heiti stofnunar)

Með frumvarpinu er lagt til að breyta heiti Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu. Nýtt heiti verði Sjónstöðin. Í gamla nafninu eru hvorki fleiri né færri en 13 orð og 97 bókstafir en eftir breytinguna verður orðið einungis eitt og bókstafirnir tíu.

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um skipulag haf- og strandsvæða (svæðisráð o.fl.)

Með frumvarpinu eru lagðar til tilteknar breytingar á lögum um skipulag haf- og strandsvæða til að sníða af þeim tæknilega agnúa sem komið hafa í ljós við framkvæmd þeirra áður en frekari vinna við gerð strandsvæðisskipulags hefst.

Frumvörp sem spanna vítt svið og snerta fjölda fólks

Ellefu frumvörp á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar koma frá félags- og húsnæðismálaráðherra. Frumvörpin spanna vítt svið og snerta fjölda fólks. Má þar nefna:

  • Fatlað fólk
  • Örorkulífeyrisþega
  • Ellilífeyrisþega
  • Fólk á leigumarkaði
  • Fólk sem eignast fjölbura
  • Fólk sem tekur hlutdeildarlán til fyrstu íbúðarkaupa
  • Börn sem missa foreldri
  • Foreldra sem geta ekki annast börn sín í fæðingarorlofi vegna veikinda sem rekja má til meðgöngunnar

Sjá einnig: Frumvörp sem snerta fjölda fólks

 

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta