Hoppa yfir valmynd
11. mars 2025 Utanríkisráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið

Utanríkisráðherra boðar stefnumótun og aðgerðir í varnarmálum

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. - mynd

Utanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í dag tillögu að mótun stefnu í öryggis- og varnarmálum Íslands. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024 kemur fram að mótuð verði öryggis- og varnarmálastefna. Stefnunni er ætlað að lýsa helstu öryggisáskorunum til lengri og skemmri tíma með áherslu á ytri ógnir og draga fram markmið Íslands í alþjóðlegu öryggis- og varnarsamstarfi, fjalla um nauðsynlegan varnarviðbúnað, og skipulag og getu sem þurfi að vera til staðar á Íslandi, auk þess að benda á hugsanlegar umbætur á laga- og stofnanaumgjörð varnarmála.

„Þörfin á styrkingu í öryggis- og varnarmálum er knýjandi og því hef ég flýtt þessari stefnumótun, sem unnin verður í samstarfi við alla flokka á Alþingi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Við þurfum að sjá til þess að hér sé til staðar nauðsynleg þekking, geta og innviðir til að tryggja öryggi Íslands í samstarfi við bandalagsríki okkar. Í dag erum við ekki aðeins að ýta úr vör stefnumótun heldur einnig aðgerðum.“

Byggt verður á stefnum og skuldbindingum sem Ísland hefur tekist á hendur og átt þátt í að þróa, m.a. innan Atlantshafsbandalagsins og á grundvelli varnarsamningsins við Bandaríkin og svæðisbundins varnarsamstarfs. Settur verður á fót samráðshópur þingmanna allra flokka sem sæti eiga á Alþingi til að ræða inntak og áherslur stefnunnar. Jafnframt verður óskað álits frá innlendum og erlendum sérfræðingum á sviði öryggis- og varnarmála. Þá verður náið samráð haft við utanríkismálanefnd, ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál og þjóðaröryggisráð. Utanríkisráðuneytið heldur utan um vinnuna í samstarfi við dómsmálaráðuneytið og önnur ráðuneyti og stofnanir. Stefnt er að því að leggja fram drög að stefnu fyrir lok vorþings. 

Á sama tíma og þessi vinna hefst verður ráðist í nauðsynlegar aðgerðir til að styrkja varnarviðbragð Íslands og stöðu landsins sem samstarfsaðila bandalagsríkja í varnarmálum, innan núverandi fjárheimilda til varnarmála. Þar er m.a. horft til þess að auka samlegð í starfi stofnana á þessu sviði með auknu samstarfi, efldri vöktunar- og viðbragðsgetu og kaupum á sérhæfðum búnaði. 

Meðal aðgerða sem ráðist verður í er uppsetning á samþættingarmiðstöð öryggis- og varnarmála á varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í samvinnu við ríkislögreglustjóra, Landhelgisgæsluna og CERT-IS. Þá verður ómannaður eftirlitskafbátur tekinn í notkun í samvinnu við Landhelgisgæsluna til að efla eftirlit með sæstrengjum og höfnum. Eftirlit með netárásum verður sömuleiðis eflt, örugg fjarskipti bætt og ráðist í kaup á búnaði til að nema og stöðva ólöglega dróna.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta