Hoppa yfir valmynd
15. mars 2025 Atvinnuvegaráðuneytið

Atvinnuvegaráðuneytið tekur til starfa

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. - mynd

Atvinnuvegaráðuneytið tók til starfa 15. mars árið 2025.

Ráðuneytið byggir á grunni þeirra málefna sem heyrðu undir matvælaráðuneytið; sjávarútveg, landbúnað lagareldi, matvæli og matvælaöryggi. Að auki hafa málefni viðskipta, neytendamála og ferðamála hafa verið færð til ráðuneytisins frá fyrrum menningar- og viðskiptaráðuneyti ásamt málefnum iðnaðar sem voru færð frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Málefni skógræktar og landgræðslu sem heyrðu undir matvælaráðuneyti voru færð til umhverfis,- orku- og loftslagsráðuneytis.

Breytt mynd ráðuneytisins er samkvæmt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.  

Í stefnu ríkisstjórnar eru settar fram áherslur í málaflokkum atvinnuvegaráðuneytisins sem marka grunn fyrir stærstu verkefni ráðuneytisins. Að auki er samhæfingu í stjórnunar- og eftirlitshlutverki komið fyrir í skipuriti þvert á málaflokka.

Atvinnuvegaráðherra er Hanna Katrín Friðriksson, Bryndís Hlöðversdóttir er ráðuneytisstjóri atvinnuvegaráðuneytis.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta