Mat á stafrænni þróun og gagnamálum í heilbrigðiskerfinu
Markviss stafræn þróun er lykilatriði til að bæta skilvirkni, nýtingu fjármuna og gæði heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Til að styðja við framfarir á þessu sviði er mikilvægt að fá heildstæða mynd af stöðu stafrænnar umbreytingar, meta hvernig núverandi lausnir nýtast og greina hvaða aðgerðir geta styrkt heilbrigðiskerfið til framtíðar.
Heilbrigðisráðuneytið vinnur að mati á stöðu stafrænnar þróunar og gagnamála í íslenska heilbrigðiskerfinu með það að markmiði að greina tækifæri til umbóta og móta stefnu til framtíðar.
Til að vinna að þessu mati hefur Svava María Atladóttir, framkvæmdastjóri þróunar hjá Landspítala, fengið tímabundið leyfi frá Landspítala til að sinna greiningarvinnu fyrir heilbrigðisráðuneytið á þessu tímabili.
Svava María hefur víðtæka reynslu af þróun heilbrigðiskerfa. Hún starfaði sem ráðgjafi í þróun sjúkrahúsa og heilbrigðisfyrirtækja.
Svava María er meðhöfundur bókarinnar Discovery Design: Charting New Directions in Healthcare Improvement.