Hoppa yfir valmynd
20. mars 2025 Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Auðlesið efni: Handbók um auðlesið mál komin út

Handbók um auðlesið mál er komin út. Með útgáfunni er öllum þeim sem birta efni opinberlega gert kleift að bjóða upp á auðlesna útgáfu. - mynd

Miðstöð um auðlesið mál hefur gefið út handbók.

Handbókin fjallar um auðlesið mál.

Inga Sæland fékk fyrsta eintakið af handbókinni.

Inga Sæland er félags- og húsnæðismála·ráðherra.

Félags- og húsnæðismála·ráðuneytið styrkir Miðstöð um auðlesið mál.

Með handbókinni getur fólk lært að skrifa auðlesið mál.

Þú getur sótt handbókina með því að smella hér.

Til hvers er auðlesið mál?

Allir eiga rétt á upplýsingum á máli sem þeir skilja.

Það stendur í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Við þurfum upplýsingar sem við skiljum til þess að:

  • lifa sjálfstæðu lífi
  • taka upplýstar ákvarðanir
  • nýta réttindi okkar

Auðlesið mál gerir upplýsingar aðgengilegri.

Þess vegna er auðlesið mál mikilvægt.

Hvað er auðlesið mál?

Auðlesið mál er einfölduð íslenska.

Auðlesið mál notar algeng orð.

Auðlesið mál notar einfaldar setningar.

Auðlesið mál útskýrir flókna hluti.

Oft eru myndir líka notaðar í auðlesnum textum.

 

Auðlesið mál er líka aðgengistæki.

Fólk sem á erfitt með að lesa notar auðlesið mál.

Þannig fær þetta fólk sömu tækifæri og aðrir.

 

Fyrir hverja er auðlesið mál?

Allir geta nýtt sér auðlesið mál.

Auðlesið mál er samt aðallega fyrir fatlað fólk.

Fatlað fólk hefur sérstakar þarfir.

Auðlesið mál passar upp á þarfir fatlaðs fólks.

 

Leiðbeiningar um auðlesið mál

Í handbókinni eru leiðbeiningar um auðlesið mál.

Til dæmis um hvernig á að skrifa auðlesið mál.

Líka hvernig á að þýða texta á auðlesið mál.

 

Margir geta nýtt sér handbókina.

Til dæmis:

  • kennarar
  • blaðamenn
  • þýðendur
  • ritstjórar

 

Handbókin kom fyrst út á þýsku.

Handbókin byggir á nýjustu vísindum.

Nú er handbókin komin út á íslensku.

 

Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks

Ísland vill fara eftir samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Þess vegna þarf að gera ýmislegt.

Landsáætlun í málefnum fatlaðs fólks er listi yfir hvað á að gera.

Auðlesið mál er í landsáætluninni.

Þess vegna fær Miðstöð um auðlesið mál styrk.

Styrkurinn er frá félags- og húsnæðismála·ráðuneytinu.

Þú getur lesið Landsáætlunina á auðlesnu máli með því að smella hér.

 

Miðstöð um auðlesið mál sér um að skrifa auðlesið mál.

Miðstöð um auðlesið mál hjálpar líka öðrum að skrifa auðlesið mál.

Til dæmis með því að gefa út þessa handbók.

Það geta allir fengið hjálp frá Miðstöð um auðlesið mál.

Heimasíða Miðstöðvar um auðlesið mál er audlesid.is.

Inga Sæland og Snorri Rafn Hallsson.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta