Hoppa yfir valmynd
25. mars 2025 Dómsmálaráðuneytið

Endurskoðar lög og framkvæmd á nálgunarbanni til að tryggja rétt þolenda

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að yfirfara gildandi lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili, sem og framkvæmd þess og leggja til breytingar í samræmi við þá yfirferð. Jafnframt verði tekið til skoðunar hvort og þá með hvaða hætti hægt er að nýta ökklabönd til að auka öryggi brotaþola.

„Það er ekki boðlegt að fólk geti áreitt aðra, ógnað öryggi fólks og að úrræðin sem við eigum þyki veik. Með skipun þessa hóps er ég að tryggja öryggi þolenda í þessum málum. Það eru allt of margir sem búa við þann veruleika að vera stressaðir að fá sms, tölvupóst eða fara úr húsi – því það er verið að áreita það. Þetta er frelsisskerðing. Ég get því sent þau skilaboð út: Ef þú ert að áreita einhvern stanslaust, þá verður ekki tekið léttvægt á því,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir.

Starfshópnum er jafnframt sérstaklega falið að skoða löggjöf og framkvæmd í nágrannalöndunum. Gert er ráð fyrir að starfshópurinn skili tillögum um mitt ár 2025. Starfshópurinn er skipaður fulltrúum frá dómsmálaráðuneytinu og embættum ríkissaksóknara, ríkislögreglustjóra, lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu og Kvennaathvarfinu.

Hópurinn mun skila tillögu að úrbótum um mitt ár.

Hópinn skipa:

  • Anna Barbara Andradóttir frá Ríkissaksóknara
  • Kristín Alda Jónsdóttir frá Ríkislögreglustjóra
  • Hildur Sunna Pálmadóttir frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
  • Linda Dröfn Gunnarsdóttir frá Kvennaathvarfinu
  • Jakob Birgisson frá dómsmálaráðuneytinu
  • Drífa Kristín Sigurðardóttir frá dómsmálaráðuneytinu, formaður hópsins








Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta