Hoppa yfir valmynd
26. mars 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Rætt um nýtingu jarðhita í Slóvakíu

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, og Denisa Saková, efnahagsmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Slóvakíu. - mynd

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra átti í gær fund með Denisa Saková, efnahagsmálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Slóvakíu, þar sem rædd voru orkumál og nýting jarðhita í Slóvakíu. 

Saková var í heimsókn til Íslands til að kynna sér nýtingu Íslendinga á jarðhita og heimsótti m.a. Hellisheiðarvirkjun og Grindavík. Slóvakía er mjög háð innfluttu gasi, sem hefur hækkað gríðarlega í verði frá innrás Rússa í Úkraínu.

Í Slóvakíu finnst jarðhiti á nokkrum stöðum, sem til þessa hefur einkum verið nýttur til heilsubaða en lítið til hitunar eða orkuframleiðslu. Ráðherrarnir sammæltust um að skoða betur möguleika á samstarfi Íslands og Slóvakíu á sviði jarðhitanýtingar og skyldra mála.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta