Hoppa yfir valmynd
27. mars 2025 Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Auglýst eftir styrkumsóknum í Grænlandssjóð

Auglýst eftir styrkumsóknum í Grænlandssjóð - myndUnsplash / Visit Greenland

Stjórn Grænlandssjóðs auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum fyrir árið 2025.

Sjóðurinn starfar samkvæmt lögum nr. 108/2016 og hefur það hlutverk að efla samskipti Grænlands og Íslands. Sjóðurinn veitir styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttaviðburða og annarra málefna á sviði menningar, menntunar og vísinda, sem geta stuðlað að auknum samskiptum landanna. 

Á þessu ári verður 4 m.kr. úthlutað úr sjóðnum. 

Umsóknum skal beint til stjórnar Grænlandssjóðs og þær sendar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, Reykjastræti 8, 101 Reykjavík eða í tölvupósti á [email protected]. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi 22. apríl nk. 

Athygli er vakin á því að einungis er tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð má finna á heimasíðu Grænlandssjóðs á vef ráðuneytisins. 

Sjá einnig:

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta