Samtal leiðtoga á sviði menntamála á ISTP 2025
Alþjóðlegur fundur menntamálaráðherra og formanna kennarasamtaka um málefni kennara, ISTP 2025, er nú afstaðinn. Leiðtogar á sviði menntamála víða að úr heiminum funduðu í þrjá daga í Hörpu í síðustu viku til að ræða menntaumbætur. Að umræðum loknum lögðu þátttökuríki fram skuldbindingar sínar til menntaumbóta fram að næsta fundi, sem haldinn verður í Eistlandi árið 2026.
Mikilvægi leikskólastigsins skipaði stóran sess í umræðunni. Rannsóknir sýna að börn sem hafa verið á leikskóla ná betri námsárangri síðar meir, auk þess sem þátttaka á leikskólastigi jafnar tækifæri nemenda með ólíka félags- og fjárhagsstöðu til náms. Stjórnvöld þurfi að tryggja gott aðgengi að leikskólanámi á viðráðanlegu verði til að stuðla að auknum jöfnuði og bættum hag nemenda.
Fram kom að vellíðan kennara sé samofin vellíðan nemenda og að mikilvægt væri að líta á skóla sem samfélag. Auk þess að styðja við störf kennara þurfi að treysta þeim fyrir að sinna störfum sínum.
Lýðræði í menntun innan og utan skólastofunnar og virk þátttaka nemenda í að móta eigin framtíð var einnig til umræðu. Hlutverk skóla er m.a. að undirbúa nemendur til þátttöku í lýðræðislegu samfélagi og styðja við mótun gagnrýnnar hugsunar gagnvart samfélaginu og umheiminum. Ítrekað var dregið fram mikilvægi þess að nemendur öðlist færni í að leggja eigið mat á upplýsingar.
Þá var hraði tækniframfara til umræðu og mikilvægi þess að fylgja þróuninni og skapa umgjörð í kringum tæknina þar sem gætt er að siðferði. Stjórnvöld og skólasamfélagið þurfa að vinna saman að því að tryggja að ný tækni á borð við gervigreind þjóni almannahag og gagnist sem verkfæri í menntun, án þess að stýra henni.
Upptaka af opnun ISTP 2025
Ljóst er að áskoranir sem þátttökuríkin standa frammi fyrir eru keimlík þótt ríkin og menntakerfi þeirra séu ólík. Flest ríki standa frammi fyrir kennaraskorti. Á sama tíma hafa kröfur til gæðanáms aldrei verið meiri. Fjárfesta þurfi í menntakerfinu, ekki síst á leikskólastiginu.
„Kennarar gegna lykilhlutverki í menntaumbótum. Þess vegna er þessi vettvangur, ISTP, svo mikilvægur þar sem hér á sér stað hreinskilið samtal milli ráðherra og formanna kennarasamtaka sem ég vona að þið miðlið áfram til kennara og skólasamfélagsins í ykkar löndum. Við verðum að huga að menntamálum á þessum tímum þegar spenna ríkir í alþjóðamálum, áskoranir blasa við þegar kemur að tækninýjungum og umhverfismálum, og sterkt menntakerfi gegnir lykilhlutverki í að takast á við þær áskoranir,“ sagði Katrín Jakobsdóttir fundarstjóri undir lok ISTP 2025 á Íslandi.
Upptaka af lokun ISTP 2025
Mennta- og barnamálaráðuneytið stóð að ISTP 2025 ásamt Kennarasambandi Íslands í samstarfi við Efnahags- og framfarastofnunina (OECD) og Alþjóðasamtök kennara (Education International).
Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt menntamálaráðherrum þátttökuríkja og yfirmanni menntamála hjá OECD