Fullt hús í Hornafirði og Flóanum
Þéttsetið var á fyrstu tveimur fundum fundaraðar atvinnuvegaráðherra og bændasamtakanna sem ber heitið „Frá áskorunum til lausna“. Fundirnir voru haldnir 7. apríl sl. í félagsheimilunum Félagslundi í Flóahreppi og Holti á Mýrum í sveitarfélaginu Hornafirði.
Frá fundinum í félagsheimilinu Félagslundi í Flóahreppi.
Húsfyllir var á báðum fundum og komu fundargestir sínum spurningum og hugleiðingum varðandi stöðu íslensks landbúnaðar á framfæri við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Trausta Hjálmarsson formann bændasamtakanna.
Nýliðun í landbúnaði, framtíð stuðningskerfis og tollamál voru meðal þeirra málefna sem brenna hvað mest á bændum og spunnust af því líflegar umræður. Fundargestum gafst jafnframt tækifæri til að skrá sig til þátttöku í rafrænum umræðuhópum í rannsókn sem unnin verður á vegum atvinnuvegaráðuneytisins.
Frá fundinum í félagsheimilinu Holti á Mýrum í sveitarfélaginu Hornafirði.
Hringferðin nýtist einnig til að heilsa upp á bændur og kynna sér þeirra búrekstur, á Suðurlandi heimsótti ráðherra bændurna Magnús Örn Sigurjónsson og Hugrúnu Sigurðardóttur sem búa á Eystri-Pétursey í Vestur-Skaftafellssýslu.
Atvinnuvegaráðherra ásamt þeim Hugrúnu Sigurðardóttur og Magnús Erni Sigurjónssyni, bændum á Eystri-Pétursey.
„Það er er mikilvægt að fá fram hugmyndir bænda til að finna lausnir fyrir framtíð landbúnaðar á Íslandi“ sagði atvinnuvegaráðherra. „Stefna ríkisstjórnarinnar í landbúnaði er skýr, áhersla er lögð á að ýta undir vöxt og verðmætasköpun í matvælaframleiðslu. Á kjörtímabilinu verður gripið til aðgerða til að efla nýsköpun í landbúnaði, draga úr orkukostnaði garðyrkjubænda og auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti. Við ætlum okkur að breyta jarðalögum til að vinna gegn samþjöppun og stuðla að nýtingu á ræktarlandi til búrekstrar. Og við munum áfram vinna að þeim grundvallarsjónarmiðum sem birtast í landbúnaðarstefnu fyrir Ísland til ársins 2040. “
Næstu fundir í fundaröðinni verða sem hér segir:
8. apríl
- kl. 12:00 - Barnaskólanum á Eiðum
- kl. 20:00 - Félagsheimilinu Breiðamýri í Þingeyjarsveit
9. apríl
- kl. 10:00 - Félagsheimilinu Hlíðarbæ, Akureyri
- kl. 14:30 - Félagsheimilinu Blönduósi
- kl. 20:00 - Hótel Hamar, Borgarnesi
Fundir í Reykjavík og á Vestfjörðum verða auglýstir síðar.