Landsskipulagsstefna 2024-2038 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun gefin út
Skipulagsstofnun gaf í dag út gildandi landsskipulagsstefnu ásamt fimm ára aðgerðaáætlun. Landsskipulagsstefna 2024-2038 var samþykkt á Alþingi þann 16. maí 2024 en útgáfu hennar nú er ætlað að gera efni stefnunnar aðgengilegra þeim sem vinna að framfylgd hennar, sveitarfélögum, ráðgjöfum og öðrum þeim sem hafa áhuga á eða koma að skipulagsgerð:
Uppbygging
Í þingsályktun um landsskipulagsstefnu eru sett fram þrjú markmið stjórnvalda í skipulagsmálum: Um vernd umhverfis og náttúru, velsæld samfélags og samkeppnishæft atvinnulíf.
Undir hverju markmiði koma fram áherslur ásamt tilmælum um hvernig beri að framfylgja stefnunni, sem ýmist eiga við um skipulag á miðhálendi, í dreifbýli, í þéttbýli og á haf- og strandsvæðum. Að auki felur stefnan í sér aðgerðaáætlun til að hrinda markmiðum hennar í framkvæmd.
Í þessari útgáfu eru áherslur og tilmæli þingsályktunarinnar sett fram undir fjórum köflum eftir því hvar þau eiga við samkvæmt ofangreindri landfræðilegri skiptingu. Öllum þeim áherslum og tilmælum sem eiga við fyrir skipulagsgerð á tilteknu svæði eru þannig gerð skil í viðkomandi kafla.
Efni útgáfunnar er að uppistöðu úr þingsályktuninni og tölusetning áherslna og tilmæla um framfylgd sú sama, þó uppröðun sé önnur. Skýringum hugtaka hefur jafnframt verið bætt við auk þess sem valið efni úr greinargerð hefur verið nýtt þar sem talin var þörf á frekari skýringum við stefnuna.
Framfylgd og kynning
Skipulagsmálin fluttust nýverið úr innviðaráðuneyti yfir félags- og húsnæðismálaráðuneytið. Á landsskipulag.is má nálgast frekari upplýsingar um landsskipulagsstefnuna, framfylgd hennar og einstakra verkefna aðgerðaáætlunar.
Á næstu mánuðum verður Skipulagstofnun á ferð víðs vegar um landið, þar sem hún mun eiga samtal við sveitarfélögin um skipulagsmál og meðal annars kynna útgefna stefnu og ræða það sem landsskipulagsstefna felur í sér fyrir skipulagsgerð.
Landsskipulagsstefnan er nú komin út á lesvænu formi. Útgáfunni er ætlað að gera efni stefnunnar aðgengilegra þeim sem vinna að framfylgd hennar, sveitarfélögum, ráðgjöfum og öðrum þeim sem hafa áhuga á eða koma að skipulagsgerð.