Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2025 Atvinnuvegaráðuneytið

„Frá áskorunum til lausna“ - vel heppnaðri fundaröð lokið

Á ferð sinni um landið heimsótti atvinnuvegaráðherra bændur og kynnti sér áhugaverð verkefni, þ.á.m. nýja kornþurrkunarstöð við Laugaland í Eyjafirði sem fimm bændur og fjölskyldur þeirra hafa komið upp.  - myndDL

Þrír síðustu fundir af sjö í fundaröð atvinnuvegaráðherra og bændasamtakanna voru haldnir 9. apríl sl. í félagsheimilinu Hlíðarbæ við Akureyri, félagsheimilinu á Blönduósi og á hótel Hamri í Borgarnesi.


Troðið var út úr dyrum á fundinum sem haldinn var á Hótel Hamri í Borgarnesi.
Líkt og í öðrum landshlutum var fundarsókn með besta móti en samtals mættu tæplega sjö hundruð gestir á fundina dagana 7.-9. apríl.

„Ég er þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til að hitta bændur víðsvegar um landið og fræðast um það sem á þeim brennur“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. „Afkoma bænda er þar skiljanlega ofarlega á blaði auk fjölmargra annara atriða, sem snerta bæði tækifæri og áskoranir í greininni.
Tæplega 700 gestir mættu á fundaröð atvinnuvegaráðherra og Bændasamtakanna,  „Frá áskorunum til lausna“
Tæplega 700 gestir mættu á fundaröð atvinnuvegaráðherra og Bændasamtakanna, „Frá áskorunum til lausna“.
Að þessari fundaröð lokinni tekur nú við vinna innan ráðuneytisins við að vinna úr því sem fram kom í samráði við Bændasamtökin og fleiri hagaðila. Hluti þeirrrar vinnu verða rafrænir umræðuhópar sem myndaðir verða af bændum. Fundargestum bauðst að skrá sig til þátttöku í hópavinnunni, samtals óskuðu um 240 manns eftir að taka þátt í þeirri vinnu.

Í framhaldinu verða mótaðar tillögur að aðgerðum til að efla nýsköpun í landbúnaði, auðvelda nýliðun og kynslóðaskipti og draga úr orkukostnaði garðyrkjubænda líkt og fram kemur í stefnuyfirýsingu ríkistjórnarinnar. Einnig er stefnt að því að breyta jarðalögum til að vinna gegn samþjöppun og stuðla að nýtingu á ræktarlandi til búrekstrar.

Fundir í Reykjavík og á Vestfjörðum verða auglýstir síðar.

Fundurinn í félagsheimilinu á Blönduósi var þéttsetinn.
Fundurinn í félagsheimilinu á Blönduósi var þéttsetinn.



Eyfirðingar og nærsveitamenn fylltu salinn í félagsheimilinu Hlíðarbæ við Akureyri.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta