Mikil eftirspurn eftir efni um félagslega einangrun
Frá því að vitundarvakningin Tölum saman hófst hafa daglega um 150-300 manns kynnt sér fræðsluefni á vefnum um félagslega einangrun. Með vitundarvakningunni vilja stjórnvöld vekja athygli almennings á því hve alvarleg félagsleg einangrun er og hvernig við getum öll verið hluti af lausninni.
„Það er frábært að sjá hversu margir hafa kynnt sér verkefnið, og þá sérstaklega þau úrræði og leiðir sem eru í boði – bæði fyrir þau sem erufélagslega einangruð eða fólk sem þekkir nágranna, ættingja eða vini í slíkri stöðu. Það er svo margt hægt að gera, allir geta gert eitthvað,“ segir Líney Úlfarsdóttir, sálfræðingur. Hún er verkefnastjóri vitundarvakningarinnar ásamt Svavari Knúti Kristinssyni, tónlistarmanni.
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið stendur fyrir vitundarvakningunni og segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, að markmiðið sé að opna augu fólks fyrir félagslegri einangrun í samfélaginu og vekja athygli á samfélagslegri ábyrgð okkar allra.
„Sem ráðherra félags- og öldrunarmála þá er það eitt af mínum hjartans málum að vinna gegn þeirri þöglu ógn sem einmanaleiki og félagsleg einangrun eru,“ segir hún.
Lýðheilsuvandi sem mikilvægt er að taka á
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur skilgreint félagslega einangrun sem lýðheilsuvanda til jafns við reykingar, ofneyslu áfengis, offitu og fleiri stórfelldar ógnir við almenna heilsu. WHO hefur auk þess bent á að félagsleg einangrun sé að aukast í öllum aldurshópum.
Samkvæmt greiningu sem kynnt var í gær er 12% eldra fólks á Íslandi stundum einmana og 4% frekar oft, mjög oft eða alltaf einmana. 27% eldra fólks ver meiri tíma eitt en það vildi og 6% segist búa við frekar mikla eða mjög mikla félagslega einangrun.
- Tölum saman - bæklingur á íslensku (pdf)
- Let's talk – bæklingur á ensku (pdf)
- Porozmawiajmy - bæklingur á pólsku (pdf)
Hvað eru einmanaleiki og félagsleg einangrun?
Einmanaleiki er huglæg, óvelkomin tilfinning sem við finnum fyrir þegar við upplifum skort á félagslegum samskipum. Fólk er í eðli sínu félagsverur og því er nauðsynlegt að eiga í félagslegum samskiptum við annað fólk. Einmanaleiki er tilfinning sem getur komið og farið.
Félagsleg einangrun er hins vegar lítil eða engin félagsleg tengsl. Félagsleg einangrun er ekki það sama og félagsleg nægjusemi. Nær allar mannverur hafa þörf fyrir tengsl og einhvers konar nánd. Það að vera „út af fyrir sig“ og að einangrast félagslega er ekki það sama.
Sjá meira á island.is/felagsleg einangrun