Hoppa yfir valmynd
11. apríl 2025 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Upplýsingar um áhrif loftslagsbreytinga aðgengilegar á Loftslagsatlas Íslands

Nýr vefur Veðurstofu Íslands, Loftslagsatlas Íslands, er nú aðgengilegur. Vefurinn veitir innsýn inn í hvernig loftslag á Íslandi getur þróast og breyst til aldamóta og gerir aðgengilegar upplýsingar um þróun loftslagsbreytinga og þýðingu þeirra fyrir nærumhverfi og lífsskilyrði fólks. Það er bæði hluti af því að gæta að aðlögunarhæfni Íslands að loftslagsbreytingum og þáttur í því að efla þekkingu almennings á áhrifum loftslagsbreytinga hér á landi.

Loftslagsatlasinn var ein af fjórum forgangsaðgerðum sem lagðar voru til í skýrslu stýrihóps, loftslagsþolið Ísland, sem fjallaði um aðlögun Íslands að loftslagsbreytingum. Stýrihópurinn taldi Loftslagsatlasinn vera aðgerð sem aukið geti seiglu og samkeppnishæfni Íslands frammi fyrir áhrifum loftslagsbreytinga. Loftslagsatlasinn byggir á sviðsmyndum Milliríkjanefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) um hnattræna losun gróðurhúsalofttegunda og hafa gögnin sem þar birtast verið endurreiknuð fyrir Ísland og hafið umhverfis það.

Vinna er nú í gangi í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu við fyrstu aðgerðaáætlun Íslands um aðlögun að loftslagsbreytingum og er Loftslagsatlasinn mikilvægt verkfæri til að styðja við stefnumótun og ákvarðanatöku í tengslum við aðlögun að loftslagsbreytingum með breytta framtíð í huga.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: „Samhliða mótvægisaðgerðum vegna loftslagsbreytinga er nauðsynlegt að huga að aðlögunaraðgerðum til að takast á við afleiðingarnar og áhrif þeirra hér á Íslandi. Skilningur og meðvitund almennings á áhrifum loftslagsbreytinga á nærumhverfi þeirra og lífsviðurværi er þar grundvallaratriði. Loftslagsatlasinn er til þess fallinn að auka þekkingu almennings og aðgengi að upplýsingum sem hjálpar okkur á þessari vegferð.“

Gögnin í Loftslagsatlasinum eru opin og öllum aðgengileg á myndrænu formi í gegnum kortavefsjá, auk þess sem hægt er að hlaða þeim niður á öðrum sniðum. Gögnin er hægt að nýta á ýmsan máta til að meta viðkvæmni samfélaga gagnvart loftslagsbreytingum og mögulegar áhættur sem þeim fylgja. Þar er m.a. hægt að nálgast upplýsingar um hvernig loftslagsbreytingar geti haft áhrif á hitafar, úrkomu og sjávarflóð á Íslandi til loka aldarinnar, miðað við mismunandi sviðsmyndir um hnattræna losun gróðurhúsalofttegunda.

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið styrkti gerð atlasins sem er aðgengilegur hér: Loftslagsatlas Veðurstofa Íslands

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta