Hoppa yfir valmynd
15. apríl 2025 Atvinnuvegaráðuneytið

Fjárfestingastuðningur í sauðfjárrækt og nautgriparækt.

Atvinnuvegaráðuneytið hefur lokið yfirferð umsókna um fjárfestingastuðning í nautgriparækt og sauðfjárrækt vegna framkvæmda á árinu 2025.

Fyrir fjárfestingastuðning í nautgriparækt barst 141 umsókn, þar af eru 63 vegna nýframkvæmda og 78 vegna endurbóta á eldri byggingum. Heildarkostnaður við fjárfestingar nautgripabænda vegna framkvæmda á árinu 2025 er samkvæmt umsóknum um 5,4 milljarðar króna. Til úthlutunar eru 276 millj. kr. og styrkhlutfall reiknast um 5,1 % af heildarfjárfestingakostnaði.

Í sauðfjárrækt barst 172 umsókn. Þar af eru 51 vegna nýframkvæmda og 121 vegna endurbóta á eldri byggingum. Heildarkostnaður við fjárfestingar sauðfjárbænda vegna framkvæmda á árinu 2025 er 2,8 milljarðar kr. Til úthlutunar eru samtals 172 millj kr. og styrkhlutfall reiknast um 6,1 % af heildarfjárfestingakostnaði.

Fjárfestingastuðningur er veittur vegna framkvæmda sem stuðla að hagkvæmari búskaparháttum, bættum aðbúnaði gripa og aukinni umhverfisvernd. Hægt er að sækja um stuðning til sömu framkvæmdar í allt að þrjú ár samfleytt.


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta