Hoppa yfir valmynd
16. apríl 2025 Dómsmálaráðuneytið

Dómsmálaráðherra tryggir þyrlukost Landhelgisgæslunnar

TF-GRO við æfingar. - myndLandhelgisgæslan
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur gengið frá samningi við núverandi leigusala um áframhaldandi leigu á þremur þyrlum fyrir Landhelgisgæslu Íslands til næstu sjö ára.

„Nýr leigusamningur fyrir björgunarþyrlur Landhelgisgæslu Íslands er ákaflega þýðingarmikill en með honum er viðbragðsgeta Landhelgisgæslunnar til leitar- og björgunar tryggð innan íslensku efnahagslögsögunnar næstu sjö árin hið minnsta. Þyrlurnar hafa gegnt lykilhlutverki við leit og björgun, sjúkraflutninga og almannaöryggi. Það er ljóst að þyrlurnar hafa skipt sköpum við afar krefjandi björgunaraðstæður bæði á sjó og landi,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og bendir á að mikilvægi þeirra verði seint vanmetið og þörfin fyrir þær fari sífellt vaxandi.
Leitar- og björgunarþyrlurnarhafa reynst sérlega vel við krefjandi aðstæður á hafsvæðinu umhverfis Ísland á undanförnum árum.

„Þessi samningur endurspeglar áherslu ríkisstjórnarinnar í öryggismálum. Síðasta ár var metár í útköllum, þar af var helmingur þeirra vegna sjúkraflutninga. Við þurfum að tryggja öryggi fólksins í landinu,“ segir dómsmálaráðherra. 
Þyrlurnar eru af gerðinni Airbus Super Puma H225 og komu í flugflota Landhelgisgæslu Íslands á árunum 2019-2021. Þær eru afar vel útbúnar til leitar- og björgunarstarfa á norðlægum slóðum. Með nýja samningnum verður útbúnaðurinn bættur enn frekar.

Umsamin leigufjárhæð fyrir öll 7 árin sem þyrlurnar eru leigðar er um 56 milljónir evra, eða sem samsvarar rúmum átta milljörðum íslenskra króna

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta