Valdefling stúlkna og ungra kvenna í Malaví
Íslensk stjórnvöld hafa gert samstarfssamning við félagasamtökin Go Fund a Girl Child um valdeflingu stúlkna og ungra kvenna í viðkvæmri stöðu í Mangochi, samstarfshéraði Íslands í Malaví. Verkefnið ber heitið Empower to Transform og er markmið þess að skapa umhverfi sem styður við stúlkur og ungar konur í dreifbýli og valdefla svo þær geti orðið virkar í samfélaginu.
Samtökin Go Fund a Girl Child eru feminísk grasrótarsamtök sem voru stofnuð árið 2015 og eru rekin af ungum konum í Mangochi. Samtökin horfa sérstaklega til þess að styðja við stúlkur og ungar konur sem hafa hætt í skóla, orðið fyrir ofbeldi, gifst ungar, orðið mæður ungar eða eru í annars konar viðkvæmri stöðu.
Þátttakendur í verkefninu fá fjölbreytta fræðslu um kyn- og frjósemisheilbrigði, mannréttindi, jafningjastuðning og lífsleikni, svo sem samskiptafærni, sjálfsöryggi, heilbrigð sambönd, lausn ágreinings og loks fjármálalæsi og viðskiptaþjálfun. Veittir verða styrkir til þátttakenda til að hefja eigin atvinnurekstur, og byggja þannig upp fjárhagslegt öryggi fyrir sig og fjölskyldur sínar, ásamt skólastyrkjum fyrir þær sem vilja hefja aftur nám í skóla.
„Samningurinn er auðvitað sérstakt ánægjuefni, enda höfum við séð með okkar eigin augum hvernig þetta samstarf hefur skilað áþreifanlegum árangri fyrir þær stúlkur og ungu konur sem notið hafa stuðnings af þessu mikilvæga verkefni,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Það gefur mikið að sjá hvernig stuðningur frá Íslandi gefur ungum konum færi á að leiða breytingar til hins betra í sínum nærsamfélögum.“
Framkvæmd verkefnisins fer fram á Bwananyambi svæðinu í Mangochi sem er afskekkt svæði þar sem tíðni þungana meðal stúlkna og ungra kvenna er mjög há og barnahjónabönd algeng. Í Mangochi héraði hafa 42% allra stúlkna á aldrinum 15–19 ára orðið þungaðar að minnsta kosti einu sinni og er tíðnin enn hærri á afskekktum svæðum líkt og Bwananyambi.
Verkefnið er til tveggja ára og byggir á fyrra samstarfsverkefni íslenskra stjórnvalda og Go Fund a Girl Child um valdeflingu ungra stúlkna í viðkvæmri stöðu í Mangochi-héraði á árunum 2022–2023 sem skilaði góðum árangri og sýndi mikilvægi þess að styðja við verkefni sem þessi. Verkefnið er í samræmi við mannréttinda- og jafnréttisáherslur Íslands í þróunarsamvinnu og um leið liður í því markmiði að efla grasrótarsamtök í samstarfslöndum Íslands. Þá mun verkefnið einnig miða að því að byggja upp getu Go Fund a Girl Child svo samtökin geti vaxið og dafnað til lengri tíma.
Elín R. Sigurðardóttir, skrifstofustjóri þróunarsamvinnuskrifstofu utanríkisráðuneytisins, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Íslands og Prudence Chavula, framkvæmdarstjóri Go Fund a Girl Child, fyrir hönd samtakanna.
Prudence er stödd á Íslandi þessa dagana þar sem hún stundar diplómanám í alþjóðlegum jafnréttisfræðum við Jafnréttisskóla GRÓ (GRÓ GEST) og að hennar sögn mun sú þekking og reynsla sem hún hefur hlotið á Íslandi skila sér í enn betra starfi hjá samtökunum.