Hoppa yfir valmynd
28. janúar 2020 Utanríkisráðuneytið

Óttast faraldur beinbrunasóttar í Jemen

Heilbrigðisstarfsmenn á vegum Barnaheilla - Save the Children að störfum í flóttamannabúðum í Jemen. Ljósmynd: Save the Children - mynd

Fulltrúar Barnaheilla – Save the Children óttast að beinbrunasótt í Jemen geti verið upphaf faraldurs en rúmlega 52 þúsund tilfelli hafa verið skráð í landinu og staðfest eru 192 dauðsföll af völdum sóttarinnar. Af þeim sem hafa látist eru 78 börn.

Beinbrunasótt (dengue) er veirusjúkdómur sem smitast með moskítóflugum og smit hafa verið skráð í flestum landshlutum Jemen á síðustu mánuðum. Flest tilfellin, eða um 60 prósent, hafa verið skráð í borgunum Hodeidah og Adan. „Ef ekki er gripið til ráðstafana, til þess að styðja við heilbrigðiskerfið og efla aðstöðu til þess að greina smit snemma, er hætta á að tala dauðsfalla hækki verulega,“ segir Guðrún Helga Jóhannsdóttir verkefnastjóri kynningarmála og erlendra verkefna.

Að sögn hennar hafa átök í landinu og mikil úrkoma raskað vatnsbirgðum og vegna þessara truflana hefur fólk sjálft þurft að safna regnvatni. „Það hefur meðal annars stuðlað að útbreiðslu moskítóflugna á viðkomandi svæðum og leitt til aukinnar smithættu á beinbrunasótt,“ segir Guðrún Helga.

Barnaheill – Save the Children hafa dreift sjúkrabirgðum á starfssvæði sín til þess að bregðast við beinbrunasóttinni og einnig er unnið markvisst að því að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu moskítóflugna og miðla þekkingu til heilbrigðisstarfsmanna um það hvernig bregðast eigi við beinbrunasóttinni.

Guðrún Helga segir að vegna stöðugra átaka í Jemen síðastliðin fimm ár sé erfitt að bregðast skjótt við. Friður í landinu gæti tryggt enduruppbyggingu heilbrigðiskerfisins en það stendur frammi fyrir hruni þar sem meira en helmingi heilbrigðisstofnananna hefur verið lokað, meðal annars vegna þess að sjúkrahús hafa orðið fyrir loftárásum eða vegna þess að skortur er á nauðsynlegum lyfjum og hæfu starfsfólki.

Nánar á vef Barnaheilla

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta