Nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna lyfjakaupa
Þann 4. maí tekur gildi nýtt greiðsluþátttökukerfi vegna kaupa á lyfjum. Meginmarkmiðið er að auka jafnræði og draga úr lyfjakostnaði þeirra sem þurfa að nota mikið af lyfjum. Mikilvægt er að fólk kynni sér breytingarnar sem nýtt kerfi hefur í för með sér.
Á vef Sjúkratrygginga Íslands eru greinargóðar upplýsingar um nýja greiðsluþátttökukerfið og þar er einnig reiknivél sem gerir fólki kleift að reikna út lyfjakostnað sinn að gefnum forsendum.