Framkvæmdasjóður ferðamannastaða auglýsir eftir umsóknum
Opnað hefur verið verið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða vegna framkvæmda á árinu 2023. Umsóknarfrestur er til kl. 13 miðvikudaginn 5. október.
Framkvæmdasjóður ferðamannastaða fjármagnar framkvæmdir á ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila.
Sjóðnum er heimilt að fjármagna framkvæmdir er snúa að:
- Öryggi ferðamanna.
- Náttúruvernd og uppbyggingu.
- Viðhaldi og verndun mannvirkja og náttúru.
- Fjármögnun undirbúnings- og hönnunarvinnu sem er nauðsynleg vegna áðurgreindra framkvæmda.
Hins vegar er sjóðnum ekki heimilt m.a. að:
- Að bera rekstrarkostnað af mannvirkjum og vegna náttúruverndarsvæða eða annarra ferðamannastaða.
- Að fjármagna framkvæmdir sem eru á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru
- og menningarsögulegum minjum.
- Að veita fjármagni til verkefna sem þegar er lokið.
Umsóknarferlið
Ýtarlega er farið yfir umsóknarferlið og þau skilyrði sem þarf að uppfylla á sérstakri umsóknarsíðu hér á vefnum en sjálft umsóknarformið er á island.is. Meðal annars kemur fram að umsóknir geta fallið í annan eftirfarandi flokka eftir eðli verkefnisins:
- I - Þjónusta/aðstaða á ferðamannastað eða ferðamannaleið:
- II - Úrbætur vegna náttúruverndar og/eða öryggis á ferðamannastað eða ferðamannaleið:
Mikilvægt að vanda umsóknir
Væntanlegir umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þau lög sem gilda um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða nr. 75/2011 og reglugerð nr. 782/2017 og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér vel gæðaviðmið sjóðsins sbr. gæðamatsblað ásamt ýmsum frekari upplýsingum sem finna má á umsóknarsíðu.