Hoppa yfir valmynd
1. nóvember 2021 Utanríkisráðuneytið

Börn flosna upp vegna loftslagsbreytinga í vaxandi mæli

Frá Mósambík: Ljósmynd: Save the Children - mynd

Hækkandi hitastig, hækkun sjávarborðs og niðurbrot lands leiddu til þess á síðasta ári að tíu milljónir barna flosnuðu upp frá heimilum sínum. Alþjóðsamtökin Save the children – Barnaheill, vara við því í nýrri skýrslu útgefinni í aðdraganda COP26 í Glasgow, að þessi börn og þúsundir annarra eigi aldrei afturkvæmt heim. Samtökin segja að uppflosnun fólks vegna loftslagsbreytinga sé komin til að vera og vandinn verði sífellt meiri.

Samkvæmt skýrslunni lentu þrjátíu milljónir manna á hrakhólum á síðasta ári vegna breytinga á veðurfari, þriðjungurinn á barnsaldri, eða „þrisvar sinnum fleiri en fóru á vergang vegna átaka og ofbeldis,“ eins og segir í skýrslunni.

Rannsókn Save the Children byggir á niðurstöðum rúmlega 420 rannsóknarskýrslna um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á börn ásamt viðtölum við 125 sérfræðinga. Einnig er rætt við 239 börn sem búa á áhættusvæðum í fimm heimsálfum, Fiji, Írak, Malí, Mósambík og Perú.

Fram kemur í frétt Save the Children um skýrsluna að börn í öllum heimsálfunum fyndu þegar fyrir hrikalegum áhrifum loftslagsbreytinga á líf þeirra. Mörg þeirra hefðu neyðst til að flýja heimkynni sín, oftast úr dreifbýli í þéttbýli, og stundum hefðu þau þurft að ferðast ein. Sum barnanna nefndu að loftslagsbreytingarnir væru að auka á fátækt þeirra og kyrrsetja þau á áhættustöðum. „Sum börn slepptu máltíðum, mættu ekki í skóla, voru þvinguð til vinnu, í barnahjónabönd, götubetl, eða misnotuð kynferðislega,“ segir í fréttinni.

  • Forsíða skýrslunnar. - mynd

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

13. Aðgerðir í loftslagsmálum
15. Líf á landi
17. Samvinna um markmiðin

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta