Ný skýrsla um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga
Nefnd um bætur á úrvinnslu og nýtingu tölfræðiupplýsinga hefur nú skilað ítarlegri skýrslu um umbætur á þessu sviði sem ríkisstjórnin fjallaði um á fundi sínum í morgun. Forsætisráðherra skipaði nefndina í kjölfar fundar stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um launatölfræði 19. janúar 2018.
Helstu niðurstöður og tillögur nefndarinnar eru:
- Tekinn verði upp sambærilegur vettvangur samráðs milli aðila í aðdraganda kjarasamninga og tíðkast í Noregi. Nefndin hefur unnið drög að samkomulagi um stofnun Kjaratölfræðinefndar og eru þau í viðauka skýrslunnar.
- Komið verði á heildarsöfnun launaupplýsinga beint frá launagreiðendum. Nefndin leggur þó áherslu á að einnig er mikilvægt að efla núverandi launarannsókn samhliða heildargagnasöfnun til að áhætta við breytta gagnasöfnun sé viðunandi og unnt verði að brúa bilið milli ólíkra gagna og tímaraða.
- Tilmælum beint til Hagstofu Íslands að skoðað verði hvernig launavísitalan endurspegli hækkandi starfsaldur og aukna menntun. Niðurstöður greiningarinnar verði birtar opinberlega og brugðist við ef þær leiða í ljós bjögun á launavísitölunni.
- Hagstofan ljúki við að uppfæra íslenska starfaflokkunarkerfið, ÍSTARF95.
- Lögð er áhersla á mikilvægi þessa að hafa áreiðanlegar upplýsingar um vinnutíma, sérstaklega unnar stundir.
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra:
„Skýrslan og þær umbætur sem þar eru lagðar til er að mínu mati mikilvægt framlag til þeirrar víðtæku vinnu sem nú á sér stað á vettvangi stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Bætt launatölfræði er meðal atriða sem ég hef lagt ríka áherslu á að verði bætt til frambúðar og ég fagna sérstaklega tillögu nefndarinnar um stofnun Kjaratölfræðinefndar, sem er vettvangur aðila í aðdraganda kjarasamninga líkt og tíðkast m.a. í Noregi.”
Í Noregi starfar nefnd um tölfræðilegar undirstöður kjarasamninga (TBU), þar sem fulltrúar heildarsamtaka á vinnumarkaði, stjórnvalda og hagstofunnar starfa saman og birta töluleg gögn til undirbúnings kjarasamningum og tryggja með því samræmdan skilning á þeim hagtölum sem liggja til grundvallar. Sambærileg samráðsnefnd á Íslandi myndi skapa vettvang fyrir samræður um forsendur í aðdraganda kjarasamninga, jafnt launatölfræði sem aðrar hagtölur, og auka traust milli aðila. Markmiðið er að tryggja sameiginlega sýn aðila á stöðu og þróun launa og efnahagsmála og ýta undir það að tekist sé á um efnisatriði frekar en tölfræðilegar aðferðir eða niðurstöður.
Nefndin var skipuð fulltrúum frá forsætisráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti, velferðarráðuneyti, heildarsamtökum á vinnumarkaði, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Ríkissáttasemjara og Hagstofu Íslands.
Launatölfræði á Íslandi, Skýrsla nefndar um umbætur á úrvinnslu og nýtingu launatölfræðiupplýsinga
Greinargerð Kim Zieschang um launavísitöluna (er einnig í viðauka skýrslunnar)