Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninga 2024
Athygli er vakin á því að utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna alþingiskosninganna á Íslandi þann 30. nóvember 2024, hefst í sendiráði Íslands í Vín fimmtudaginn 7. nóvember.
Opnunartímar:
Hægt verður að kjósa í sendiráðinu utan kjörfundar sem hér segir:
- Mán., þri. og fim. 13:00-16:00
- Mið. og fös. 10:00-13:00
Auk þess verður opið:
- Lau. 9. nóv. 11:00-14:00
- Mið. 13. nóv. 10:00-18:00
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hjá kjörræðismönnum:
Hægt verður að kjósa utan kjörfundar hjá kjörræðismönnum Íslands í umdæmislöndum sendiráðsins, eftir tímapöntun. Nánari upplýsingar um kjörræðismenn Íslands í Austurríki og umdæmislöndunum, Króatíu, Slóvakíu, Slóveníu og Ungverjalandi, er að finna á síðu sendiráðsins: Stjórnarráðið | Ungverjaland
Gagnlegar upplýsingar
Kjósendur skulu framvísa persónuskilríkjum með mynd.
Gagnlegt er fyrir kjósendur að kynna sér upplýsingar um fyrirkomulag kosninga utan kjörfundar á heimasíðu Island.is: Alþingiskosningar 2024 | Ísland.is
Ef kjósendur eru efins um hvort þeir geti kosið (séu á kjörskrá) geta þeir flett upp kennitölu sinni í kjörskrá á síðum Þjóðskrár frá 31. október nk.: Alþingiskosningar 2024 | Þjóðskrá
Hvernig kem ég atkvæði mínu til skila?
Athygli er vakin á því að skv. kosningalögum ber kjósandi sjálfur ábyrgð á því að koma atkvæði sínu á réttan stað. Til að tryggja að atkvæðið nái til viðkomandi kjörstjórnar innan tilskilins tíma, er mælst til þess að kjósendur greiði atkvæði sitt utan kjörfundar í sendiráðum og á kjörræðisskrifstofum erlendis fyrir miðjan nóvember
Hægt er að setja bréfið í póst eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma til skila. Kjörstjóra (þ.m.t sendiráðum) er skylt að koma atkvæðinu í almennan póst ef kjósandi óskar sérstaklega eftir því, en kjörstjóri getur þó ekki trygg að atkvæðið berist í tæka tíð.
Önnur lönd:
- Upplýsingar um sendiskrifstofur Íslands og kjörræðismenn eftir löndum.