Netöryggi okkar allra - skráning
Netöryggi okkar allra er yfirskrift fundar samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins föstudaginn 2. október kl. 13-15 í tilefni af evrópska netöryggismánuðinum í október. Fundurinn verður í beinni vefútsendingu á vef Stjórnarráðsins. Öllum er velkomið að fylgjast með fundinum en gestir eru beðnir um að skrá þátttöku.
Að loknu ávarpi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verður fjallað um uppbyggingu og eflingu Netöryggissveitarinnar ásamt samræmandi hlutverki hennar í samræmi við ný lög um net- og upplýsingaöryggi sem tóku gildi 1. september sl. Sérstakur gestur fundarins er Sir Rob Wainwright, meðeigandi Deloitte í Evrópu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Europol, en hann mun fjalla um fjölbreyttar ógnir af völdum skipulagðrar glæpastarfsemi á Netinu. Loks verða pallborðsumræður með sérfræðingum af ýmsum sviðum samfélagsins á sviði netöryggis og upplýsingatækni. Fjallað verður um ýmsar hliðar netöryggismála hérlendis og tækifæri til framfara.
Dagskrá:
- 13:00 Ávarp
Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.
- 13:15 Efling netöryggissveitarinnar
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar
- 13:30 Trust in a hyper connected digitalized society
Sir Rob Wainwright, meðeigandi Deloitte í Evrópu og fyrrverandi framkvæmdastjóri Europol
- 14:00 Pallborðsumræður með þátttöku Sir Rob Wainwright, Hrafnkels og eftirtalinna:
Daði Gunnarsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu
Guðrún Valdís Jónsdóttir, öryggisráðgjafi hjá Syndis
Sigyn Jónsdóttir, forstöðumaður sérfræðiþjónustu hjá Men and Mice og stjórnarkona í Tækniþróunarsjóði
Vilhelm Gauti Bergsveinsson, yfirmaður netöryggisþjónustu Deloitte á Íslandi
- Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.