Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga er til 8. maí
Frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 8. maí 2010.
Sveitarstjórnarmenn sem hyggjast skorast undan endurkjöri skulu tilkynna þá ákvörðun til yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests. Leiðbeiningar um hvernig standa skal að framboði má finna hér.