Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi
Menntamálaráðuneytinu hefur borist tilkynning um að boðnir séu fram eftirtaldir styrkir handa Íslendingum til náms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi á námsárinu 2006-2007:
a)Allt að fjórir styrkir til háskólanáms. Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem eru komnir nokkuð áleiðis í háskólanámi (hafa lokið prófi sambærilegu við BA- eða BS-próf) eða kandídötum til framhaldsnáms. Umsækjendur skulu vera yngri en 32 ára og ekki hafa dvalið lengur en tvö ár í Þýskalandi við upphaf styrktímabils.
b) Allt að þrír styrkir til að sækja þýskunámskeið sumarið 2006. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi, vera yngri en 32 ára og leggja stund á nám í öðrum greinum en þýsku. Einnig þurfa þeir að hafa góða undirstöðukunnáttu í þýskri tungu.
c) Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknarstarfa um allt að sex mánaða skeið.
Umsóknir, ásamt staðfestum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 10. október nk. Þó þurfa umsóknir frá vísindamönnum, sem hyggja á rannsóknardvöl í Þýskalandi frá 1. janúar 2006 , að hafa borist fyrir 1. október nk.
Nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu og á vef Deutscher Akademischer Austauschdienst (DAAD) www.daad.de
Eyðublöð fyrir umsóknir og fylgiskjöl með umsókn er einnig hægt að nálgast á heimasíðu DAAD: www.daad.de/form