Hoppa yfir valmynd
7. desember 2018 Utanríkisráðuneytið

Rauði krossinn í samstarf við Jafnréttisskólann

Irma Erlingsdóttir forstöðumaður Jafnréttisskólans og  Atli Viðar Thorstensen sviðsstjóri hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða krossins. Ljósmynd: RK - mynd

„Við hjá Rauða krossinum erum þess fullviss að markvisst samstarf við Jafnréttisskólann eigi eftir að efla verkefni okkar. Það er mikilvægt að hafa aðgang að þeim mikla þekkingarbrunni sem Jafnréttisskólinn hefur yfir að búa og vonum að ávinningurinn verði gagnkvæmur“, segir Atli Viðar Thorstensen sviðsstjóri hjálpar- og mannúðarsviðs Rauða krossins en á dögunum skrifuðu fulltrúar Jafnréttisskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna (UNU-GEST) og Rauða krossins á Íslandi undir samstarfssamning.

Í samningnum felst viljayfirlýsing um samstarf með áherslu á kynja- og jafnréttismál og ennfremur að skiptast á sérfræðiþekkingu í mannúðar- og þróunarstarfi bæði hérlendis og erlendis. Rauði krossinn á Íslandi hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á valdeflingu kvenna og stúlkna í alþjóðlegum verkefnum sínum.

Jafnréttisskóli Háskóla Sameinuðu þjóðanna hefur á undanförnum árum tekið á móti yfir 20 erlendum nemendum á ári í 30 eininga diplómanám í alþjóðlegum jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Námið er ætlað sérfræðingum frá þróunarlöndum og átakasvæðum og lögð er áhersla á mótun verkefna og rannsókna sem taka á kynjajafnrétti og margþættri mismunun í heimalöndum þeirra.  Skólinn hefur útskrifað 109 sérfræðinga frá stofnun skólans (2009) og þar af koma flestir frá Palestínu og Malaví þar sem Rauði krossinn á Íslandi vinnur að fjölda verkefna.

„Þetta samstarf er mikilvægt fyrir Jafnréttisskólann og opnar gátt fyrir nemendur okkar að koma að verkefnum Rauða krossins, bæði hér á Íslandi og erlendis. Við teljum að  nemendur okkar geti með aðkomu sinni gert góð verkefni Rauða krossins enn betri,“ segir Irma Erlingsdóttir forstöðumaður Jafnréttisskólans.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

5. Jafnrétti kynjanna

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta