Mannanafnanefnd, úrskurðir 8. nóvember 2007
FUNDARGERÐ
Ár 2007, fimmtudaginn 8. nóvember, var haldinn fundur í mannanafnanefnd að Neshaga 16, Reykjavík. Mætt voru Ágústa Þorbergsdóttir, Baldur Sigurðsson og Kolbrún Linda Ísleifsdóttir. Neðangreind mál voru tekin fyrir:
1. Mál nr. 50/2007 Eiginnafn: Patrek (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mál þetta, sem móttekið var 5. september 2007, var tekið fyrir á fundum mannanafnanefndar 6. september og 24. október 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Eiginnafnið Patrek (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Patreks, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Patrek (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd af eiginnafninu Patrekur (kk.).
2. Mál nr. 54/2007 Eiginnöfn: Kayla (kvk.) og Amy (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mál þetta, sem móttekið var 1. október 2007, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar 24. október 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:
1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).
2. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
3. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.
Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:
1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
a. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
b. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
c. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
d. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
e. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
Eiginnafnið Kayla (kvk.) brýtur í bág við íslenskt málkerfi og getur ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er ein kona skráð með eiginnafnið Kayla (síðara nafn) og er hún fædd árið 1973. Því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Eiginnafnið Kayla uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 og því er ekki mögulegt að fallast á það.
Eiginnafnið Amy getur ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Endingin –y er ekki í samræmi við endingar íslenskra kvenkynsorða. Kvenmannsnöfn með samhljóða endingu eru rituð með –ý í samræmi við framburð, og svo er um Amý, sem er á mannanafnaskrá. Rithátturinn Amy er erlend ritmynd þessa sama nafns. Fáein kvenmannsnöfn með þessum rithætti hafa áunnið sér hefð, til hliðar við hinn venjubundna rithátt með endingunni –ý. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru ellefu konur skráðar með eiginnafnið Amy (tíu að fyrra nafni og ein að síðara nafni) og er sú elsta fædd árið 1928. Eiginnafnið Amy telst því hafa áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 og b-lið vinnulagsreglna mannanafnanefndar frá 14. nóvember 2006. Eiginnafnið Amy tekur beygingu í eignarfalli, Amyjar, og uppfyllir þar af leiðandi öll ákvæði 5. gr. áðurnefndra laga. Amy telst vera annar ritháttur eiginnafnsins Amý og skal fært sem slíkt á mannanafnaskrá.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Kayla (kvk.) er hafnað. Beiðni um eiginnafnið Amy (kvk.) , eignarfall Amyjar, er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd eiginnafnsins Amý.
3. Mál nr. 55/2007 Millinafn: Vopnfjörð
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mál þetta, sem móttekið var 18. september 2007, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar 24. október 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Millinafnið Vopnfjörð er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Vopnfjörð uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Vopnfjörð er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
4. Mál nr. 56/2007 Eiginnafn: Ástvald (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mál þetta, sem móttekið var 24. september 2007, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar 24. október 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Eiginnafnið Ástvald (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Ástvalds, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ástvald (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritmynd af eiginnafninu Ástvaldur (kk.).
5. Mál nr. 57/2007 Millinafn: Finndal
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mál þetta, sem móttekið var 2. október 2007, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar 24. október 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Millinafnið Finndal er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn kvenna né sem eiginnafn karla. Nafnið er ekki heldur ættarnafn í skilningi 7. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Millinafnið Finndal uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Finndal er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
6. Mál nr. 58/2007 Eiginnafn: Cesil (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mál þetta, sem móttekið var 3. október 2007, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar 24. október 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:
1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).
2. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
3. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.
Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:
1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
a. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
b. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
c. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
d. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
e. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
Eiginnöfnin Cecil og Sesil eru skráð sem karlkyns eiginnöfn á mannanafnaskrá og í Þjóðskrá. Líkindin með þessum þremur nöfnum, Cecil, Sesil og Cesil, eru svo afgerandi að ekki er unnt að samþykkja nafnið Cesil sem kvenmanns-nafn, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, en samkvæmt því ákvæði er óheimilt að samþykkja sama nafn sem kvenmannsnafn og karlmannsnafn.
Ennfremur brýtur eiginnafnið Cesil (kvk.) í bág við íslenskt málkerfi og getur ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls þar sem bókstafurinn ‘c’ er ekki í íslensku stafrófi, sbr. Stafsetningarorðabókina 2006, bls. 675. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er ein kona skráð með eiginnafnið Cesil og er hún fædd árið 1944. Því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Eiginnafnið Cesil uppfyllir þar af leiðandi ekki ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Cesil (kvk.) er hafnað.
7. Mál nr. 59/2007 Eiginnafn: Daniyal (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mál þetta, sem móttekið var 5. október 2007, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar 24. október 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:
1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).
2. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
3. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.
Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:
1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
a. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
b. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
c. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
d. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
e. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
Eiginnafnið Daniyal (kk.) brýtur í bág við íslenskt málkerfi og rithátturinn –iyal í nafninu getur ekki talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá er enginn karlmaður skráður með eiginnafnið Daniyal og því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Eiginnafnið Daniyal uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Daniyal (kk.) er hafnað.
8. Mál nr. 60/2007 Eiginnafn: Hrafna (kvk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mál þetta, sem móttekið var 5. október 2007, var tekið fyrir á fundi mannanafnanefndar 24. október 2007 en afgreiðslu þess þá frestað til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Eiginnafnið Hrafna (kvk.) tekur beygingu í eignarfalli, Hröfnu, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Hrafna (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
11. Mál nr. 63/2007 Eiginnafn: Runi (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Runi (kk.) tekur beygingu í eignarfalli, Runa, og telst að öðru leyti uppfylla ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Runi (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.
13. Mál nr. 65/2007 Eiginnafn: Sven (kk.)
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Öll skilyrði 1., 2. og 3. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn þurfa að vera uppfyllt svo að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn og færa það á mannanafnaskrá. Skilyrðin eru þessi:
1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess. (Með almennum ritreglum íslensks máls er vísað til auglýsinga nr. 132/1974 og 261/1977 um íslenska stafsetningu).
2. Stúlku skal gefa kvenmannsnafn og dreng skal gefa karlmannsnafn.
3. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Þegar svo háttar að eiginnafn uppfyllir ekki þau skilyrði, sem tilgreind eru í 1. og 3. málslið 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996, þ.e. tekur ekki íslenska eignarfallsendingu og/eða telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls, er unnt að samþykkja nafnið á mannanafnaskrá ef það telst hafa áunnið sér hefð. Hins vegar heimila mannanafnalög ekki að unnt sé að samþykkja nýtt eiginnafn á mannanafnaskrá á grundvelli hefðar ef nafnið brýtur í bág við íslenskt málkerfi, sbr. 2. málslið 1. mgr. 5. gr. sömu laga.
Hugtakið hefð í mannanafnalögum varðar einkum erlend nöfn frá síðari öldum sem ekki hafa aðlagast almennum ritreglum íslensks máls. Þau eru stundum nefnd ung tökunöfn og koma fyrst fram í íslensku máli árið 1703 þegar manntal á Íslandi var tekið fyrsta sinni. Túlkun mannanafnanefndar á hugtakinu hefð í 5. og 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn styðst við eftirfarandi vinnulagsreglur sem nefndin setti sér á fundi 14. nóvember 2006 og sem eru byggðar á greinargerð með frumvarpi að mannanafnalögum og eldri vinnulagsreglum:
1. Ungt tökunafn telst hafa unnið sér hefð í íslensku máli ef það fullnægir einhverju eftirfarandi skilyrða:
a. Það er nú borið af a.m.k. 15 Íslendingum;
b. Það er nú borið af 10–14 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 30 ára aldri;
c. Það er nú borið af 5–9 Íslendingum og hinn elsti þeirra hefur náð a.m.k. 60 ára aldri;
d. Það er nú borið af 1–4 Íslendingum og kemur þegar fyrir í manntalinu 1910;
e. Það er ekki borið af neinum Íslendingi nú en kemur a.m.k. fyrir í tveimur manntölum frá 1703–1910.
2. Með Íslendingum er átt við þá sem öðlast hafa íslenskan ríkisborgararétt án umsóknar og eiga eða hafa átt lögheimili á Íslandi.
3. Tökunafn getur verið hefðað, þó að það komi ekki fyrir í manntölum, ef það hefur unnið sér menningar-helgi. Nafn telst hafa unnið sér menningarhelgi komi það fyrir í alkunnum ritum, frumsömdum og þýddum, í nafnmynd sem ekki brýtur í bág við íslenskt málkerfi.
Eiginnafnið Sven (kk.) brýtur í bág við íslenskt málkerfi og getur ekki talist ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá eru fjórir menn skráðir með eiginnafnið Sven, þrír að fyrra nafni og einn að síðara. Sá elsti þeirra er fæddur árið 1945. Því er ekki hefð fyrir þessum rithætti, sbr. ofangreindar vinnulagsreglur. Eiginnafnið Sven uppfyllir þar af leiðandi ekki öll ákvæði 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og því er ekki mögulegt að fallast á það.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið og ritháttinn Sven (kk.) er hafnað.
- - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - - -
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið.