Mál nr. 108/2023 Úrskurður 30. október 2023
Mál nr. 108/2023 Eiginnafn: Laurasif
Hinn 30. október 2023 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 108/2023 en erindið barst nefndinni 17. október.
Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:
- Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
- Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
- Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
- Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.
Ef litið er á nafnið Laurasif sem samsett nafn myndað úr nöfnunum Laura og Sif þá reynir á skilyrði nr. tvö og þrjú hér að ofan. Sem samsett nafn fer Laurasif (kvk.) gegn hefðbundnum nafnmyndunarreglum í íslensku. Fyrri liður þess er nafnið Laura, í aukaföllum Lauru. Ekki er hefð fyrir því í samsettum orðum, sem mynduð eru af tveimur nafnorðum að fyrri liður samsetningarinnar beygist heldur aðeins sá síðari. Nafnið Laurasif (í eignarfalli Laurusifjar) brýtur þannig í bág við íslenskt málkerfi. Annar möguleiki væri að fyrri liður væri óbreyttur í beygingu (sbr. eignarfallsmyndina Laurasifjar). Sá möguleiki bryti einnig í bág við íslenskt málkerfi þar sem nefnifallsmyndir veikra kvenkynsorða (s.s. gata, lilja) mynda ekki fyrri lið í samsettum orðum; þar er notað eignarfall (s.s. götuljós, liljuvöndur). Það getur ekki heldur talist í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls að rita tvö sjálfstæð eiginnöfn á borð við Laura og Sif sem eitt orð. Rithátturinn Laurasif er ekki í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls og uppfyllir þ.a.l. ekki tilvitnað ákvæði laga um mannanöfn.
Til samanburðar vísast til úrskurðar mannanafnanefndar frá 25. september 2008 í máli nr. 56/2008, vegna umsóknar um nafnið Annalinda; til úrskurðar frá 4. febrúar 2010 í máli nr. 69/2009, vegna umsóknar um nafnið Liljarós; til úrskurðar frá 27. maí 2010 í máli nr. 40/2010, vegna umsóknar um nafnið Jónheiðar; til úrskurðar frá 21. september 2011 í máli nr. 69/2011, vegna umsóknar um nafnið Hannadís; til úrskurðar frá 3. október 2014 í máli nr. 58/2014, vegna umsóknar um nafnið Sveinnóli; til úrskurðar frá 3. júní 2016 í máli nr. 48/2016, vegna umsóknar um nafnið Olgalilja; til úrskurðar frá 22. maí 2019 í máli nr. 39/2019, vegna umsóknar um nafnið Ingadóra; til úrskurðar frá 14. janúar 2020 í máli nr. 3/2020, vegna umsóknar um nafnið Hannalísa; til úrskurðar frá 19. maí 2020 í máli nr. 32/2020, vegna umsóknar um nafnið Sigríðurjóna, til úrskurðar frá 1. júlí 2021 í máli nr. 58/2021, vegna umsóknar um nafnið Ólasteina og jafnframt til úrskurðar frá 25. ágúst 2023 í máli nr. 78/2023 vegna umsóknar um nafnið Annamaría.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Laurasif er hafnað.