Auglýst eftir tilnefningum til Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsir eftir tilnefningum til Náttúruverndarviðurkenningar Sigríðar í Brattholti sem afhent verður í tilefni af Degi íslenskrar náttúru þann 16. September næstkomandi.
Viðurkenningin verður veitt einstaklingi sem hefur unnið markvert starf á sviði náttúruverndar. Sigríður Tómasdóttir, fæddist 24. febrúar 1871 í Brattholti. Sigríður var baráttukona og náttúruverndarsinni sem lagði mikið á sig í baráttu gegn virkjun Gullfoss. Hún var því brautryðjandi á sviði náttúruverndarmála hér á landi og hefur æ síðan verið íslenskum náttúruverndarsinnum fyrirmynd.
Tilnefningar með rökstuðningi sendist umhverfis- og auðlindaráðuneytinu á netfangið [email protected] í síðasta lagi 19. ágúst 2022.