Hoppa yfir valmynd
29. júlí 2019 Utanríkisráðuneytið

WFP tvöfaldar dreifingu matvæla í Kongó

Ljósmynd frá Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó: WFP/Jacques David - mynd

Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hyggst tvöfalda dreifingu á matvælum til íbúa í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó sem smitast hafa af ebólu og vandamanna þeirra, alls um 440 þúsund manns. Verkefnið stendur yfir næstu sex mánuði en eins og kunnugt er af fréttum hefur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) lýst yfir neyð á heimsvísu vegna faraldursins sem stigmagnast í Kongó og hefur borist til landamæraborgarinnar Goma, auk nokkurra tilvika í grannríkinu Úganda.

Með yfirlýsingu WHO fyrir tveimur vikum fólust skilaboð til alþjóðasamfélagsins um að herða baráttuna gegn faraldrinum og Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna – ein lykilstofnana í fjölþjóðlegri þróunarsamvinnu Íslands í mannúðarmálum – setti þegar af stað áætlun til að bregðast við aukinni neyð á svæðinu.

Fulltrúar WFP segja að matvælaaðstoðin miði að því að veita nauðsynlega næringu til þeirra þúsunda einstaklinga sem þegar eru smitaðir af ebólu veirunni. Viðtakendur fá mat í 28 daga, viku lengur en meðgöngutímabil veirunnar er, en frá því sýking verður líða þrjár vikur þar til einkenni koma fram. Verkefnið gerir einnig stjórnvöldum og heilbrigðisstofnunum sem berjast gegn útbreiðslu sjúkdómsins kleift að fylgjast betur með heilsufari fólksins því það þarf að sækja matinn á heilsugæslustöðvar og þarf í leiðinni að undirgangast heilsufarsskoðun.

Herve Verhoosel talsmaður WFP segir að þeir einstaklingar sem hafi læknast af faraldrinum fái matvælaaðstoð í eitt ár. Þá ætlar stofnunin að fjórfalda matvælaaðstoð til skóla á ebólusvæðum með næringarríkum heitum hádegismat en börn á þessum stríðshrjáðu svæðum eru flest alvarlega vannærð. Sjötíu þúsund börn koma til með að fá heita máltíð dag hvern í stað sautján þúsunda áður.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan
16. Friður og réttlæti

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta