Hoppa yfir valmynd
17. nóvember 2021 Dómsmálaráðuneytið

Mál nr. 151/2021 Úrskurður 17. nóvember 2021

Mál nr. 151/2021                  Millinafn:       Kaldakvísl

 

Hinn 17. nóvember 2021 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 150/2021 en erindið barst nefndinni 20. október.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt millinafn þurfa öll skilyrði 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  • Millinafn skal dregið af íslenskum orðstofnum eða hafa áunnið sér hefð í íslensku máli en má þó ekki hafa nefnifallsendingu.
  • Nöfn, sem aðeins hafa unnið sér hefð sem annaðhvort eiginnöfn karla eða eiginnöfn kvenna, eru ekki heimil sem millinöfn.
  • Millinafn skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  • Millinafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Auk þess má nafnið ekki vera ættarnafn í skilningi 7. gr. mannanafnalaga.

Millinafnið Kaldakvísl er dregið af íslenskum orðstofnum, hefur ekki nefnifallsendingu og hefur hvorki unnið sér hefð sem eiginnafn karla eða kvenna. Nafnið er heldur ekki ættarnafn í skilningi 7. gr. laga um mannanöfn. Nafnið Kaldakvísl uppfyllir þannig ákvæði 6. gr. fyrrnefndra laga.

 

Úrskurðarorð:

Beiðni um millinafnið Kaldakvísl er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta