Stöðva ber kynferðislegt ofbeldi í hernaði gegn konum
Í ávarpinu kom m.a. fram að aukið eftirlit og reglubundin skýrslugerð um notkun kynferðislegs ofbeldis gegn konum og stúlkum í hernaði væri forsenda þess að unnt yrði að hrinda viðeigandi ályktun öryggisráðsins um konur, frið og öryggi (nr. 1820) í framkvæmd. Með því að hlúa betur að jafnrétti kynjanna og bættri stöðu kvenna í aðildarríkjum þar sem ofbeldisverk af þessu tagi ættu sér stað væri jafnframt dregið úr líkunum á að þau endurtækju sig.
-
Ávarp varafastafulltrúa, Jóns Erlings Jónassonar á ensku (PDF-skjal 257 Kb).