Heimili handa hálfri milljón - Húsnæðisþing 30. ágúst
Innviðaráðuneytið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun boða til húsnæðisþings miðvikudaginn 30. ágúst (9:00-12:30) á Hilton Reykjavík Nordica. Yfirskriftin í ár er „Heimili handa hálfri milljón – Öflugur húsnæðismarkaður fyrir þjóð í vexti“.
Dagskrá þingsins er fjölbreytt en Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, flytur opnunarræðu þingsins.
Hægt er að kynna sér dagskrá og skrá á þingið á husnaedisthing.is