Fjarskiptasjóður styrkir uppbyggingu Neyðarlínu á stofnleiðum ljósleiðara og aðstöðu fyrir fjarskiptasenda
Í dag staðfestu Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu og sveitarstjórnarráðherra, Páll Jóhann Pálsson, formaður stjórnar fjarskiptasjóðs og Þórhallur Ólafsson, forstjóri Neyðarlínunnar, samkomulag um allt að 71 m.kr. framlag sjóðsins til eftirtalinna verkefna Neyðarlínu árið 2019:
- Lagning ljósleiðara frá Bláfellshálsi á Kili að Kerlingarfjöllum og Hveravöllum samhliða lagningu rafstrengs til að bæta öryggi og rekstrarskilyrði á svæðinu.
- Lagning ljósleiðara milli Seyðisfjarðar og Mjóafjarðar sem fyrri hluti hringtengingar á Austfjörðum og til að bæta öryggi og búsetuskilyrði íbúa í Mjóafirði.
- Bygging þriggja fjarskiptastaða til að bæta farsímaþjónustu á svæðum vestan við Snæfellsjökul, kringum Krossholt á Barðaströnd og á hringveginum syðst á Holtavörðuheiði.
Eignarhald verður eftir sem áður hjá Öryggisfjarskiptum ehf. sem er í eigu ríkis og Neyðarlínu. Fyllstu hagkvæmni verður gætt í ofantöldum framkvæmdum með fjárframlagi helstu hagsmunaaðila eins og við á. Tryggt verður jafnframt að aðgengi og gjald fyrir afnot af þessum innviðum sé hagkvæmt og byggi á jafnræði.
Árangursríkt samstarf
Fjarskiptasjóður og Neyðarlínan ohf. hafa átt samstarf um uppbyggingu fjarskiptainnviða utan markaðssvæða í yfir 10 ár. Fjölmargir fjarskiptastaðir um land allt hafa ýmist verið efldir eða byggðir frá grunni á grundvelli þess. Tilgangurinn hefur einkum verið bætt farsímasamband á þjóðvegum, fjölförnum ferðamannastöðum, rýmingarsvæðum við eldstöðvar og út á haf.
Sérstök áhersla hefur verið á orkuskipti í rekstri afskekktra fjarskiptastaða síðustu ár. Flestir slíkir staðir á landinu, sem áður fengu rafmagn frá staðbundnum díselrafstöðvum með tilheyrandi mengum og kostnaði, hafa verið færðir yfir á vistvænni orkugjafa. Sambærileg uppfærsla fleiri staða er í undirbúningi.
Samstarf fjarskiptasjóðs og Neyðarlínu um lagningu ljósleiðara hefur jafnframt aukist síðustu ár. Stærsta verkefnið af þeim toga var lokaáfangi hringtengingar Vestfjarða með ljósleiðara um Ísafjarðardjúp árið 2016.