Sýningaropnun á verkum Önnu Þ. Guðjónsdóttur
Sýningin "Þegar birtan fær form" með málverkum eftir Önnu Þ. Guðjónsdóttur, opnar í anddyri sendiráðsins í dag.
Á sýningunni verða 10 málverk sem öll hafa eiginleika ljóss og skugga að megin viðfangsefni. Sýningin er hluti af dagskrá sendiráðsins í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands og verður opnuð í anddyri sendiráðs Íslands kl 16:30 í dag. Sýningin stendur yfir til 18. maí 2018 og hægt er að berja hana augum á opnunartíma sendiráðsins á milli kl 9-16 alla virka daga.