Fjármálastöðugleikaráð - fundargerð frá 15. október 2014
Fjármálastöðugleikaráð
2. fundur.
15. október 2014 – fjármála- og efnahagsráðuneyti
Ráðsmenn: Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, formaður, Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, Unnur Gunnarsdóttir, forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
Aðrir fundarmenn: Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneyti, Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika í Seðlabankanum, Jón Þór Sturluson, aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins, Tómas Brynjólfsson, skrifstofustjóri efnahagsmála og fjármálamarkaðar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Steindór Grétar Jónsson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu (ritar fundargerð).
Fundur settur kl. 10:00
1. Skýrsla kerfisáhættunefndar
Seðlabankastjóri kynnir skýrslu kerfisáhættunefndar. Umræður.
2. Starfsreglur fjármálastöðugleikaráðs og kerfisáhættunefndar
Farið yfir drög að starfsreglum fjármálastöðugleikaráðs sem undirbúin hafa verið í samstarfi ráðuneytisins og aðildarstofnana. Drögin samþykkt með breytingum.
Dagskrá fyrir starfsemi fjármálastöðugleikaráðs árið 2015 verði ákveðin fyrir 30. nóvember nk. Fundir fari fram í janúar, apríl og október.
Drög að starfsreglum kerfisáhættunefnd lögð fram til kynningar. Drögin með breytingum verði staðfest af ráðsmönnum skrifleiðis.
3. Eiginfjáraukar í lögum um fjármálafyrirtæki
Drög að frumvarpi kynnt.
4. Drög að opinberri stefnu um fjármálastöðugleika
Farið yfir drög að opinberri stefnu um fjármálastöðugleika. Drögin verði samþykkt skrifleiðis með breytingum.
5. Fréttatilkynning
Fréttatilkynning samþykkt með breytingum.
6. Önnur mál
a. Engin önnur mál
Fundi slitið kl. 12:10