Hoppa yfir valmynd
16. október 2019 Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið

Á íslensku má alltaf finna svar!

  - myndKristinn Ingvarsson

„Á íslensku má alltaf finna svar,“ las frú Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands í morgun inn á tölvuforrit sem safnar röddum Íslendinga til að nota í samskiptum við snjalltæki framtíðarinnar. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins lásu svo hinar þrjár línurnar úr kvæði Þórarins Eldjárn um íslenskuna. Þannig lána þau sínar raddir til máltæknilausna sem nú eru í smíðum. 

Raddsýnasöfnunin fór fram við upphaf ráðstefnu sem haldin var í Veröld – húsi Vigdísar í dag. Vægi tungumálsins eykst stöðugt í samskiptum okkar við tölvur og tæki. Máltækni fangar samvinnu og samspil tungumálsins og tölvutækninnar en þróun hennar miðar að því að tryggja framtíð íslenskunnar í stafrænum heimi. Á ráðstefnunni komu fyrirtæki og fræðimenn saman til þess að greina þau tækifæri sem máltækni fyrir íslensku felur í sér fyrir ýmsar tegundir þjónustu. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði ráðstefnuna og sagði meðal annars: 

„Ég vil hvetja alla til að ljá íslenskri máltækni raddir sínar á vefsíðunni samrómur.is og taka þannig þátt í máltækniverkefninu. Stjórnvöld leggja áherslu á uppbyggingu innviða, nýsköpun og samstarf með því verkefni en afurðir máltækniverkefnisins verða tæknilausnir sem munu hjálpa okkur að tryggja stafræna framtíð móðurmálsins.“

Meðal þess sem fræðast mátti um á ráðstefnunni var máltækni í fjármálaþjónustu og fjölmiðlun og notkun raddgreiningar í heilbrigðisþjónustu. Nemendur við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík taka þátt í þeim hluta máltækniverkefnisins sem snýr að söfnun sýnishorna af málnotkun almennings en nánar má fræðast um það verkefni á vefnum samrómur.is.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta