Hoppa yfir valmynd
24. maí 2019 Utanríkisráðuneytið

UNICEF: Rúmlega sex þúsund skrifuðu undir á fyrstu tveimur sólarhringunum

Ljósmynd: UNICEF - mynd

„Átakið fer vel af stað, á fyrstu tveimur sólarhringunum hafa rétt yfir 6000 manns skrifað undir ákallið,“ segir Bergsteinn Jónsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi. „Við setjum stefnuna þó mun hærra, á Íslandi búa rúmlega 80 þúsund börn og okkar draumur er að ná einni undirskrift fyrir hvert barn. Þá myndum við svo sannarlega breiðfylkingu fólks sem heitir því að gæta að velferð barna hér á landi.“

UNICEF á Íslandi hóf á dögunum átak undir yfirskriftinni „Stöðvum feluleikinn – líðum aldrei ofbeldi gegn börnum“ en að mati UNICEF er ofbeldi helsta ógnin sem steðjar að börnum á Íslandi. Sú staðhæfing er byggð á nýjum gögnum um ofbeldi gegn börnum sem unnin voru af Rannsóknamiðstöðinni Rannsóknir & greining og Stígamótum. Í þeim gögnum kemur fram að 16,4% barna á Íslandi verði fyrir líkamlega eða kynferðislegum ofbeldi fyrir 18 ára afmælisdaginn, eða rúmlega 13 þúsund börn. Átakinu fylgir ákall til almennngs um að ganga í breiðfylkingu fólks sem tekur afstöðu gegn ofbeldi á börnum. Hægt er að skrifa undir ákallið hér.

UNICEF á Íslandi hefur áður vakið athygli á því að ofbeldi sé ein helsta ógn sem steðjar að börnum á Íslandi. Árið 2013 gaf UNICEF út skýrsluna Réttindi barna á Íslandi: Ofbeldi og forvarnir. Þar kallaði UNICEF eftir markvissum aðgerðum stjórnvalda til að stemma stigu við ofbeldi gegn börnum. Þó margt hafi breyst til betri vegar á síðustu árum vantar enn mikið upp á að mati samtakanna. Nú er ætlunin að nota slagkraftinn sem myndast með átakinu til að þrýsta á stjórnvöld tað stofna Ofbeldisvarnarráð og eins að sveitarfélög setji sér skýra viðbragðsáætlun gegn ofbeldi.

„Við erum einnig ánægð með hversu vel hefur verið tekið í ákall okkar af stjórnvöldum. Við höfum fengið þær fregnir að ákall okkar um Ofbeldisvarnarráð verði tekið fyrir á fundi ríkisstjórnarinnar. Nú þurfum við að þrýsta á að þetta mikilvæga mál komist í gegn, í krafti fjöldans. Saman getum við breytt samfélaginu fyrir börnin okkar,“ sagði Bergsteinn í samtali við Heimsljós í morgun.

Efnisorð

Heimsmarkmiðin

3. Heilsa og vellíðan

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta